08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í D-deild Alþingistíðinda. (1642)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Jón Pálmason:

Ég vil bara taka það fram, að ég hefi ekkert tækifæri haft til þess að kynna mér kostnaðarhlið þessa máls, og þar sem svo mun um fleiri, tel ég sjálfsagt að vísa till. til n. Ég sé ekki, að það þurfi að eyðileggja málið; n. getur athugað það í dag, og svo er hægt að setja það á dagskrá á morgun.