24.11.1933
Efri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
2. mál, kosningar til Alþingis
Guðrún Lárusdóttir:
Mér þykir rétt að taka það fram þegar við þessa umr., að það eru ákvæði í kosningalagafrv., sem ég geri mig alls ekki ánægða með. T. d. að dagurinn, sem valinn er til kosninga, er sunnudagur. Ég tel það óviðeigandi fyrir löggjafarþingið að staðfesta þá gr. 1., sem er um þetta, svo framarlega sem það vill taka nokkurt tillit til þeirra manna í landinu, sem ennþá bera nokkra lotningu fyrir kirkjugöngu og vilja ekki láta skerða helgi sunnudagsins með jafnmiklum hávaða og gauragangi eins og alltaf hlýtur að vera kosningum samfara. Og ég sé ekki betur en það brjóti í bág við helgidagalöggjöfina, því að þar stendur skýrum stöfum, með leyfi hæstv. forseta;
„Almenna fundi má eigi halda um veraldleg efni á helgidögum þjóðkirkjunnar fyrr en um nónbil. Þá og þar, er guðsþjónusta fer fram eftir nón, er þó því aðeins heimilt að halda almenna fundi samtímis, að þess sé gætt, að fundurinn sé eigi haldinn svo nálægt kirkju eða bænahúsi, að guðsþjónustan verði trufluð af því“.
Nú mun í ráði að setja kjörfund ekki síðar en kl. 10 árd. í kaupstöðum, en kl. 12 í sveitum, og þá er það einmitt á þeim tíma, sem siður hefir verið, a. m. k. til sveita, að hafa guðsþjónustu. Ég sé ekki annað en annaðhvort verði að víkja, en sé hinsvegar ekki nokkra ástæðu fyrir þá, sem eiga að stjórna þessu landi, að skerða helgi sunnudagsins með því að lögbinda hann sem kosningadag. Því að það er öllum ljóst, að í sambandi við kosningarnar fer margt fram, sem er ekki í samræmi við helgi sunnudagsins. Ég vil því taka það fram, að ég sé mér ekki annað fært en að koma með brtt. viðvíkjandi þessu atriði.