08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í D-deild Alþingistíðinda. (1670)
82. mál, verðuppbót á útflutt kjöt
Frsm. (Páll Hermannsson):
Á síðasta þingi var samþ. heimild í 22. gr. fjárl., sem gefur ríkisstj. leyfi til að verja miklu fé til þess m. a. að bæta nokkuð upp verð á útfluttu dilkakjöti á þessu ári. Ætla ég ekki, nema sérstakar ástæður gefist til, að fara langt út í þær ástæður, sem til þess lágu, að þessi heimild var gefin. Ég veit, að hv. dm. er öllum kunnugt, hverjar ástæður öllu því, að ráðizt var í að heimila svo mikið fé í þessu augnamiði. Kreppan og vandræði manna, ekki sízt þeirra, sem búa í sveitum landsins, er alkunnur hlutur. Ég vil hinsvegar upplýsa það, af því að það kemur þessu máli við, að svo lítur helzt út fyrir, að í ár muni verða gott verð á útfluttu frystu kjöti. Að vísu er ekki enn hægt að segja, hvað verðið muni verða, af því að enn hefir ekki verið flutt út nema sem svarar helmingi af freðkjötinu, en verðið á þessu, sem selt hefir verið, hefir verið gott. Um verðið á því kjöti, sem enn er óselt, verður maður að geta í lófa sinn, en kunnugir menn þessum málum telja, að vænta megi góðs verðs á því í ár, og m. a. s. mjög góðs í samanburði við verðlagið síðastl. ár, enda var full nauðsyn á því, að verðið síðastl. ár var hraklágt, langt fyrir neðan allt, sem vit var í. Hinsvegar er nokkurn veginn vitanlegt um verðið á saltkjötinu. Samband ísl. samvinnufélaga, sem hefir mikið af þeirri sölu með höndum, hefir tjáð n., að búast megi við, að verðið muni verða 60 au. kg. af fyrsta flokks saltkjöti og 50 au. af annars flokks kjöti.
Mér dettur ekki í hug að leggja dóm á það, hvaða verð framleiðendurnir verða að fá í framtíðinni til þess að geta lifað á framleiðslunni, enda veit ég það ekki, og tel mér ekki skylt að vita það fremur en aðrir. En það er ljóst, að ekki verður hjá því komizt, að kjötframleiðendur fái svo mikið fyrir vöru sína, að atvinnugreinin sé lífvænleg. Það framleiðir enginn þá vöru, sem ekki getur gefið honum lífsbrauð, og kjöt verður væntanlega etið hér á landi framvegis eins og hingað til, og mun enginn láta sér detta í hug, að farið verði að flytja það inn í landið.
Landbn. hefir leyft sér að flytja þáltill. á þskj. 183, eingöngu í því augnamiði að láta í ljós þann vilja sinn, og væntanlega einnig vilja hv. d., að ríkisstj. noti fjárlagaheimildina í ár til þess að bæta upp kjötverðið að því leyti sem þörf krefur. en n. hefir látið það algerlega undir mati og dómi stj., hver þörfin verður í þessu efni. Ég get sagt ráð fyrir mína hönd. og ég ætla f. h. n. líka, að verðið á saltkjötinu er nú langt fyrir neðan það verð, sem bændur þurfa að fá. En eins og ég sagði, hefir stj. málið á valdi sínu, og er þess að vænta, að stj. noti heimildina, ef hún telur þess þörf. Annars auðvitað ekki. Fyrir mitt leyti get ég lýst yfir því, að ég treysti núv. hæstv. atvmrh. fullkomlega til að fara samvizkusamlega og sanngjarnlega með þessa heimild. og það er fremur styrkur fyrir hæstv. ráðh. að fá slíka yfirlýsingu sem þessa frá d., um það, að hún ætlist til þess, að heimildin sé notuð, ef þörf krefur.
Ég sé svo ekki brýna ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa till. að svo stöddu. en ég er við því búinn að fara lengra út í aðdragandann að þessari þáltill., ef umr. skyldu gefa tilefni til þess.