04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í D-deild Alþingistíðinda. (1700)

87. mál, samvinnubyggðir

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Ég get nú látið mér nægja að vera stuttorður um þessa till., vegna þess að grg. er nokkuð ýtarleg. Það leikur ekki á tveim tungum, að mikil þörf er á því, að af hálfu hins opinbera verði hlaupið undir bagga með heim mönnum, sem vildu reisa nýbýli í sveit. Eitt af því, sem valdið hefir mönnum mestrar áhyggju undanfarið, er það, hve fólksfjölgun í sveit er lítil og hversu unga fólkið sækir til kaupstaðanna, ekki sízt vegna þess, að möguleikar fyrir stofnun nýbýla í sveit eru litlir. Er bæði erfitt að fá land til þess að byggja á, og eins er mikill stofnkostnaður við að reisa bú í sveit fyrir unga menn og félausa.

Það hafa verið frammi í Alþingi till. í þá átt, að ríkið styddi eitthvað þá menn, sem hefjast vildu handa í þessu efni. Ein af þessum till. hefir mér litizt vænlegust, frv. um samvinnubyggðir, sem flutt var í fyrra af tveimur framsóknarmönnum, en var ekki afgr. frá n., þótt þing það væri alllangt. Þótti mörgum, sem vel leizt á málið, það miður.

Nú hafði ég í hyggju að taka þetta mál upp, en þóttist sjá fram á, að það mundi ekki fá afgreiðslu, vegna þess, hvað þingið er stutt og mörgum öðrum málum að sinna. Hitt tel ég vænlegt, að vekja athygli á frv. og fara fram á við hv. deild að samþ., að þetta frv. verði endurskoðað og ýtarlega undirbúin hugmyndin og lögð fram í frv.formi á næsta reglulegu Alþingi.

Þeir, sem kunnugir eru vinnubrögðum í Alþingi, vita, að það safnast svo mikill málafjöldi í nefndir, að þær eiga erfitt með — sérstaklega á svona stuttu þingi — að sinna umfangsmiklum nýmælum eins og þyrfti að vera. Þess vegna ríður á að undirbúa slík mál sem allra bezt.

það, sem veldur því, að ég lít sérstaklega til þeirrar hugmyndar um samvinnubyggðir sem helzta úrræðis í nýbýlamálinu, er það, að gert er ráð fyrir byggðinni í hverfum, og geta menn því orðið aðnjótandi þeirra þæginda, sem nútíminn hefir að bjóða. Ennfremur geta menn hjálpazt að um notkun véla og annara tækja við störf á heimilum.

Þá hefi ég jafnframt tekið upp þá áskorun til stj., að hún leggi til, að til samvinnubyggðanna gangi helmingur af tekjum tóbakseinkasölunnar, eftir að þær eru lausar undan þeim lagaákvæðum, sem nú gilda; en það er frá 1. jan. 1935. Fram til þess tíma eiga þær að ganga í ríkissjóð. Helming teknanna var áður ráðstafað til byggingar- og landnámssjóðs, og er ekki nema gott um það að segja. En nú má gera ráð fyrir, að framtíðarlausnin á nýbýlamálinu verði á samvinnugrundvelli. Því hefi ég lagt til að taka upp þessa stefnu, enda er það svo, að byggingar- og landnámssjóður hefir hingað til aðallega gegnt því hlutverki að lána til endurbygginga í sveit.

Í sambandi við það, að ég legg til, að tekjur tóbakseinkasölunnar hálfar renni til samvinnubyggða, þá hefi ég gert ráð fyrir, að við undirbúning málsins verði tekið til athugunar, að menn verði styrktir til að byggja hús á samvinnubýlunum. Þessu var ekki gert ráð fyrir í frv. í fyrra. þetta vildi ég taka fram, af því að mér láðist að geta þess í grg.

Ég sé, að fram er komin brtt. við till. á þskj. 224, frá hv. þm. Str., um það, að felld verði niður sú áskorun, að hálfar tekjur tóbakseinkasölunnar renni til samvinnubyggða. Þessari till. er ég mótfallinn. En það, sem fyrir mér þó aðalkappsmálið, er það, að þessi hugmynd verði ýtarlega rannsökuð og tekin til meðferðar á næsta reglulegu þingi. Auðvitað þætti mér bezt, að hv. d. gæti fallizt á að samþ. till. óbreytta; því að sjá verður samvinnubyggðunum fyrir tekjum, — og þá helzt með því að taka einhverja tekjupósta, sem ríkið hefir yfir að ráða, og verja til þessara framkvæmda. Ég tel einmitt vel til fallið að setja málið í þennan farveg, þar sem ég geri ráð fyrir, að með samvinnubyggðunum mundi verða leyst nokkuð af því verkefni, sem byggingar- og landnámssjóði er ætlað að leysa, en það er að styrkja nýbýli í landinu.