04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í D-deild Alþingistíðinda. (1701)

87. mál, samvinnubyggðir

Héðinn Valdimarsson:

Það var komin fram till. nokkuð löngu á undan þessari í hv. Ed., frá hv. 3. landsk., þar sem ætlazt er til að fela ríkisstj. að skipa milliþn. til að undirbúa löggjöf um, að ríkissjóður reisi nýbýlahverfi í sveitum. Segir síðan, hvernig þessi n. skuli skipuð. Sé ég ekki annað en að sú till. nái yfir þessa till. að efni til, og meira en það. Finnst mér sannast að segja meira liggja á, að sú till. nái fram að ganga en þessi, en vil leggja til, að þessari till. verði vísað til landbn. til athugunar.