24.11.1933
Efri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (174)
2. mál, kosningar til Alþingis
Jón Baldvinsson:
Ég þarf að bera af mér þær sakir, sem hv. 3. landsk. bar á mig, að ég hefði reynt að koma mér vel við hann. Ég hefi aldrei gert minnstu tilraun í þá átt að koma mér vel við hv. 3. landsk. (Dómsmrh.: Þetta vita þó allir). Hér er nú farið að gerast það sama og í kirkjunni, þegar barnið gat ekki svarað, en móðirin stóð upp og svaraði fyrir það. En ég endurtek það, sem ég áður hefi sagt, að ég hefi aldrei vænzt neins af hv. 3. landsk. og aldrei gert neitt til þess að koma mér vel við hann.
Að því er uppbótarsætin snertir vil ég minna hv. 3. landsk. á það, að hann mun hafa mikið traust á þeim hv. þm. Str., hv. þm. V.-Ísaf. og hv. 1. þm. S.-M., a. m. k. á tveimur þeim fyrri, og eru þeir þó allir Reykvíkingar. Verð ég að játa það, að ég sé ekki muninn á því, hvort þessir menn eða aðrir eru kosnir á þing í kjördæmum eða af landslista, sem flokksstjórn hefir valið þá á. Reykvíkingar eru þeir og verða í báðum tilfellum a. m. k.