16.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í D-deild Alþingistíðinda. (1804)
34. mál, vantraust á dómsmálaráðherra
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Ég veit ekki, hvort hv. 3. þm. Reykv. talar hér sem fulltrúi stj., en það lítur þó helzt út fyrir, að svo se. Hinsvegar hefir þinginu mér vitanlega ekki borizt nein tilkynning um það, að stj. hafi sagt af sér, og enginn ráðh. er hér staddur á fundinum, til þess að skýra þingheimi frá þessu. Ég mun því krefjast þess, að málinu verði haldið áfram, þangað til eitthvað heyrist frá stj. sjálfri um þetta, og mér kemur það undarlega fyrir sjónir, ef fara á að neita því, að mál, sem flutt eru hér á þinginu, séu tekin til meðferðar á löglegan hátt.