16.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í D-deild Alþingistíðinda. (1807)

34. mál, vantraust á dómsmálaráðherra

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég sé, að tveir ráðh. eru nú komnir á þingfund, svo að þeim gefst þá tækifæri til að skýra þingheimi frá hinu sanna í þessu máli. (Dómsmrh.: Stendur hv. þm. Það á miklu að fá að vita þetta?). Ja, ég tel sjálfsagt, að stj. láti svo lítið að skýra þinginu opinberlega frá ekki ómerkilegri atburði en að stjórnin leggi niður völdin, og skora hæstv. ráðh. að gefa yfirlýsingu um málið.