16.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í D-deild Alþingistíðinda. (1810)
34. mál, vantraust á dómsmálaráðherra
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Það er undarlegt, að það skuli þurfa að toga það út úr ráðherranum með töngum, að stj. hafi sagt af sér. Það er þó skylda stj. að skýra þinginu frá slíku. En nauðugt hlýtur það að hafa verið dómsmrh. að leggja niður völdin, eftir þessu framferði að dæma.
Viðvíkjandi vantraustinu á hæstv. dómsmrh. vil ég skýra frá því, að það hefir lengi vofað yfir honum. — Eftir að grein Jóns Þorlákssonar um afstöðu Sjálfstfl. til samsteypustj. kom í Morgunblaðinu, var auðséð, að nauðsynlegt var að grennslast eftir, að hve miklu leyti Framsfl. studdi stj., og er langt síðan umr. urðu um þetta í Alþfl. Á mánudaginn var fórst fyrir fundur í miðstjórn flokksins vegna bilunar rafmagnsveitunnar og ljósleysisins það kvöld (Dómsmrh.: Vantaði kerti?), þar sem ákvörðun væri tekin um þetta, en kvöldið eftir var þessi fundur svo haldinn og þar ákveðið, að Alþfl. skyldi bera fram vantraust á hæstv. dómsmrh. Nú hefir hæstv. ráðh. staðfest fregnir blaðanna um það, að stj. sé búin að segja af sér, og fyrst svo er, óska ég eftir því, að málið sé tekið út af dagskrá. En ég vænti þess, að við Alþýðuflokksmenn getum undir öðru formi komið fram vantrausti okkar á hæstv. dómsmrh. síðar á þinginu.