08.12.1933
Neðri deild: 32. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í D-deild Alþingistíðinda. (1819)
102. mál, samgöngur við Austfirði
Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Hv. þm. Snæf. var að væna okkur, flm. þessarar till., um alvöruleysi. Það er ástæðulaust, en hinsvegar er framkoma hans í þessu máli mótuð alvöruleysi. Það er hreinasta firra að bera fram till. um að vísa málinu í n. nú á síðasta degi þingsins, þar sem alveg er óvíst um, hverjir þeirra, sem nú sitja á þingi, eiga þangað afturkvæmt. Þetta mál hefir legið fyrir tveimur síðastl. þingum, og er því gerkunnugt öllum þeim, sem aður hafa setið hér á þingi. Hv. þm. talaði um tap Eimskipafél. af Austfjarðaferðunum. Ég veit ekki betur en að tap verði á öllum strandferðum Eimskipafél., og ég hélt, að ríkisstyrkurinn, 250 þús. kr., ætti að vera nokkurskonar uppbót á því tapi. Sá hluti, sem Austfirðingar fá af ferðum félagsins, er hverfandi lítill. Eina skipið, sem gengur þar, er Lagarfoss, og svo í íhlaupum Selfoss. Tveir aðrir „fossar“ koma þar við, en á svo óheppilegum tíma, að lítið gagn er að því. Hv. þm. mega vita, að ekkert er eins líklegt til þess að draga úr heilbrigðum atvinnurekstri eins og slæmar samgöngur, og ekki sízt þess vegna verður að gera eitthvað til þess að auka samgöngurnar við Austfirði.