08.12.1933
Neðri deild: 32. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (1824)
102. mál, samgöngur við Austfirði
Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Þetta er nú orðið miklu stærra pólitískt mál en ég gerði ráð fyrir í upphafi, þar sem hv. þm. Snæf. hefir notað það sem tækifæri til þess að lýsa yfir vantrausti sínu á hæstv. dómsmrh. En ég skal skýra fyrir þessum hv. þm., hvers vegna till. kom svona seint fram. Við höfum verið að semja við ríkisskipin um ferðir austur, og ætluðum einnig að reyna að ná samningum við Eimskipafél., en það hefir dregizt. En málið er svo alkunnugt flestum þm., að ég tel alveg áhættulaust að samþ. það á sama degi og það er borið fram. Hv. þm. talaði um það, að Eimskipafél. hefði á síðastl. ári ætlað að fjölga ferðum austur, en orðið að hætta því vegna vöntunar á flutningi. Við þetta er það að athuga, að þetta áttu ekki að vera áætlunarferðir, heldur byggðust þær á samkomulagi milli hæstv. stj., Austfjarðaþm. og Eimskipafélagsins. En við svona ferðir, sem ekki standa á áætlun, en eru bara tilkynntar, er ekki hægt að miða.