24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í D-deild Alþingistíðinda. (1835)
64. mál, milliþinganefnd um launamál, starfsmannafækkun o.fl.
Eysteinn Jónsson:
Ég tek það fram þegar í byrjun, að ég er sammála um, að þau mál, sem tekin eru til meðferðar í þessari þáltill., eru mjög nauðsynleg og mjög brýn þörf, að hér sé tekið til starfa til að samræma launakjör starfsmanna ríkisins, bæði þeirra, sem taka laun eftir launalögum, og eins hinna, sem ekki gera slíkt. Um þetta hygg ég, að geti ekki orðið neinn ágreiningur, því að öllum er það ljóst, og sérstaklega þeim, sem þekkja vel til í þessu efni, að þar ríkir allmikið misrétti. Ég get því komizt hjá að tala mikið um þessa till., a. m. k. fyrri lið hennar.
En ég vil þó vekja athygli á því í þessu sambandi, að það, sem ræður launagreiðslum almennt í þessu landi, er ekki það, hvað mikið ríkið greiðir starfsmönnum sínum, því að greiðslur til þessara starfsmanna hljóta alltaf að verða nokkuð hliðstæðar, þegar til lengdar léti, þeim greiðslum, sem almennt eru af höndum inntar fyrir störf við einstakra manna fyrirtæki. Það er kunnara en um þurfi að tala, að við mörg einkafyrirtæki og ennfremur þau, sem eru hálfvegis opinher, eru greidd laun, sem eru miklu hærri en þau laun, sem ríkisstofnanirnar greiða eða ríkið sjálft. Af þessu hefir það svo leitt, að ýmsir þeirra manna, sem hafa verið á launum hjá ríkinu og hafa tilboð um betur launaðar stöður hjá öðrum stofnunum og hafa getað bent á hliðstæða menn í öðrum stöðum, sem hafa miklu betri kjör. hafa knúið út úr ríkjsstj. og öðrum heim, er með völdin fara, ýmiskonar uppbætur og glepsur til uppbótar á laun sín. Þetta er í raun og veru ástæðan til þess, að launakjörin eru í svo miklu ósamræmi.
Af þessum ástæðum er ráð höfuðatriðið í þessu máli, hvernig sem á er litið, að launakjör almennt séu þess eðlis, að ríkið geti komizt sæmilega frá því að greiða starfsmönnum sínum, en þurfi ekki að greiða þeim of há laun. Þess vegna fannst mér alveg sjálfsagt, að hér ætti ekki að hætta við hálfkarað verk, heldur taka til athugunar, hvort ekki væri hægt að hafa áhrif á launakjör almennt, þá er kannske hægt að þekka launin hjá starfsmönnum ríkisins, því að þegar til lengdar lætur, fara laun starfsmanna ríkisins alltaf eftir launagreiðslum einkafyrirtækjanna. En verði farið að lækka launin hjá starfsmönnum ríkisins umfram það, sem tíðkast við einkafyrirtæki, þá mundi það, er frá líði, verða til þess, að ríkið sæti uppi með ófullnægjandi starfskrafta, eða að öðrum kosti að taka ráð ráð, að bæta starfsmönnum sínum upp.
Nú er það svo, að mörg þeirra fyrirtækja, sem um ræðir í brtt. minni, sér staklega í fyrri lið hennar, eru að nokkru leyti ríkisfyrirtæki, eða a. m. k. bendluð við ríkissjóð, t. d. bankarnir, þar sem ríkið ábyrgist fyrir þá stórar upphæðir og leggur sumum þeirra til fé, og um alla þessa banka er löggjöf, sem Alþingi hefir sett. Í þeirri löggjöf er lítilsháttar minnzt á launakjörin að því er forstjóra þessara stofnana snertir. Allir vita, að launagreiðslur í bönkunum eru miklu hærri en góðu hofi gegnir, og miklu hærri en hjá ríkinu almennt. Í Landsbankanum eru nú margir menn, sem hafa yfir 10 þús. kr. í laun. Það eru að vísu ýmsir yfirmenn bankans, deildarstjórar o.þ.h., en ekki sýnist ástæða til að viðhalda slíkum launagreiðslum. Þær hafa m. a. mikil áhrif til hækkunar á launagreiðslum ríkisins. Einnig má benda á fyrirtæki eins og Eimskipafélagið, sem er styrkt af ríkinu. Við slíkt fyrirtæki, þar sem ríkið tekur hatt í rekstrinum, er alveg nauðsynlegt að sjá svo um, að launagreiðslur séu hæfilegar. Það er ekki skynsamlegt, þar sem ríkisvaldið getur ráðið við, að laun séu svo há, að þau gefi starfsmönnum ríkisins ástæðu til að krefjast launahækkunar og annara fríðinda. Sama máli gegnir um einkafyrirtæki; þau hafa ill áhrif í þessu efni. T. d. hafa forstjórar sumra slíkra fyrirtækja tvöföld ráðherralaun eða meira.
Ef á að fá viðunanlega leiðréttingu á þessu, þá verður að taka fyrir háar launagreiðslur almennt. Það sér hver heilvita maður, að það er ekki nema kák eitt og algerlega óréttmætt gagnvart þeim mönnum, sem eru í þjónustu ríkisins, að taka þá eina út úr, þegar Alþingi getur tekið fleiri og lækkað launin við þá, því að með l. má setja fyrirmæli um launagreiðslur fyrirtækja, sem eiga styrk að sækja til ríkisins.
Hv. 1. flm. minntist á, að sér þætti þessi liður um bankana óþarfur, vegna þess að þingið setti bankaráðið. Ég læt nú þessi rök sem vind um eyrun þjóta og vil bara benda á það, að á sama hátt mætti segja um allar launagreiðslur ríkisins, að ekki þyrfti að samþ. slíka þál. þeirra vegna, þar sem þær væru undir yfirráðum stj., sem sett er af Alþingi. Þetta eru engin rök, heldur aðeins tilraun til þess að skjóta sér hjá að taka alvarlega á þessu máli.
Það má náttúrlega segja, að verði erfitt að framkvæma þriðja lið brtt. og hafa áhrif á launagreiðslur einstaklingsfyrirtækja, en ég hygg það þó fullt rannsóknarefni, sem þessi n. ætti að taka fyrir, því að í launagreiðslum einstaklingsfyrirtækja er að finna grundvöllinn að launagreiðslum ríkisins. Það mætti t. d. hugsa sér, að þessu mætti koma fyrir með því móti, að þau fyrirtæki, sem að einhverju leyti þyrftu að sækja til bankanna um lán, væru það lagafyrirmælum um þetta. Ég veit, að það mætti að ýmsu leyti fara í kringum slík fyrirmæli, en allt þetta er til athugunar, og þegar verið er að setja mþn. til að rannsaka launagreiðslur, þá er ekkert vit í öðru en að sú nefnd taki til ýtarlegrar athugunar ekki eingöngu launagreiðslur frá ríkisins hálfu, heldur einnig, hvernig grundvöllur sá, sem settur kann að verða fyrir launagreiðslum, gæti haldizt, en raskist ekki fyrir áhrif frá launagreiðslum sér stakra stofnana og einkafyrirtækja. Að svo komnu máli vil ég ekki rekja einstök dæmi um launagreiðslur einstaklingsfyrirtækja eða hálfopinberra fyrirtækja, því að slíkt á ekki heima við byrjun umr., og togstreita um einstök atriði er ekki til þess fallin að flyta fyrir afgreiðslu málsins, því að út úr því verða oft persónulegar væringar, sem ekki koma málefninu við. En ef nokkur viðunandi lausn á að fást á þessu máli, þá verður að taka þennan lið fyrst og fremst til rækilegrar athugunar.
Um sparnaðarhlið þessa máls vil ég annars segja það, að það má að vísu lækka launagreiðslur til opinberra starfsmanna að verulegu leyti, en ég vil líka benda á það, að örðugt er að loka augunum fyrir því, að fjöldi af starfsmönnum ríkisins hefir ákaflega lág laun, miðað við það, sem tíðkast almennt, t. d. starfsmenn pósts og síma, og þaðan koma nú háværar raddir um launahækkun, og slíkar raddir hækka mjög, ef farið verður að taka þetta mál til athugunar. Ég segi þetta ekki til að mæla á móti till., en ég vil benda mönnum á, að vænta hér ekki of mikils um sparnað í sambandi við þessa till. En þar fyrir er nauðsyn að taka til rækilegrar athugunar og a. m. k. reyna að samræma greiðslur og hafa áhrif til heildarlækkunar og sparnaðar, eftir því sem reynist mögulegt.
Ég geri ráð fyrir, að það leiði af sjálfu sér, að þessi n. taki um leið til athugunar niðurskipun starfa við öll ríkisfyrirtæki og hvort hægt sé að koma þeim betur fyrir með sameiningu þeirra o. s. frv. Mér er nær að halda, að í því efni mætti framkvæma nokkurn sparnað, en það mun koma undir hlutverk þessarar n., þar sem hún á að gera till. um að lækka starfsmannakostnað í heild.
Um 2. tölulið þessarar till. vil ég segja það, að ég er vitanlega ekki á móti því, að athugað verði, hvort hægt er að reka skipaútgerð ríkisins með hagkvæmara móti en hingað til hefir verið. Hitt dylst mér ekki, að þessi liður er kominn fram í pólitísku árásarskyni á þessa stofnun. Þessi útgerð er ekki rekin með óhagstæðu móti, því að þeir, sem því eru kunnugir, vita, að það er ekki sambærilegt, hvað skipin eru nú rekin með meiri hagsýni en aður. Ég er því viss um, að rannsókn mundi leiða það í ljós, að nú eru þessi skip rekin á miklu hagkvæmari hátt en áður var, en þar var reyndar ekki við mikið að jafnast og ekki mikið að stæra sig af, þótt eitthvað skánaði í því efni. Ég nefni ekki dæmi um það nú, en gæti gert það, ef farið væri nánar út í þetta. En það er dálítið einkennilegt, að þessi stofnun skuli vera ein tekin út úr, því að þá má alveg eins telja nauðsyn að rannsaka fleiri greinar ríkisrekstrarins. Verið getur, að takast mætti að spara eitthvað á ríkisrekstrinum, en ef það ætti að vera hlutverk n. að athuga fleira en starfsmannakostnaðinn, þá á að bera þetta svo fram, að það sé ekki eingöngu bundið við skipaútgerðina, heldur sé þá rannsakað um allar greinar ríkisrekstrarins. Slík rannsókn gæti gert mikið gagn, og fer varla hjá því, ef setzt er á rökstóla og allt athugað, að hægt verði að finna eitthvað til bóta og sparnaðar. Ég vil beina því til fjhn., hvort ekki væri hægt að breyta í þá átt 2. tölul., sem nú er, en verður 3. liður, ef till. mín verður samþ.
Ég skal þá ekki fjölyrða meira um þetta mál, en ég get þó ekki stillt mig um að benda á, að það virðist sem sjálfstæðismönnum hafi snúizt nokkuð hugur um milliþinganefndir. Það hefir verið svo öll þau ár, síðan þeir létu af stjórn, að engin mþn. hefir verið sett án þess að hafi verið með ýfingar og skammir og alltaf verið að tala um eyðslu á fé ríkisins í sambandi við þær. Hafa þeir komið fram í þeim málum eins og engin mpn. ætti nokkurn minnsta rétt á sér. Nú virðist hinsvegar um eitthvert hughvarf að ræða, því að nú sýnast þeir halda, að mþn. geti þó gert gagn.