05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (1838)
64. mál, milliþinganefnd um launamál, starfsmannafækkun o.fl.
Frsm. (Halldór Stefánsson):
Það sést á nál. fjhn. á þskj. 265, að n. fellst á meginefni þáltill. óbreytt, að því er til fyrra liðs kemur. Um 2. tölul. eru atkv. nm. aftur óbundin, og hefir komið fram brtt. við hann frá n.mönnum. Efni fyrri tölul. er það sama og í þáltill., er borin var fram á síðasta Alþingi: að skora á stj. að gera það, sem þar segir. Munurinn er aðeins sá, að hér er lagt til, að skipuð verði mþn. til að athuga málið, í stað þess að skora á stj. að gera það sjálf. Það hafa fallið þau ummæli frá ríkisstj., að hún hafi ekki tíma né aðstöðu til að sinna þessu verki, og því hefir verið fallizt á að breyta til og fela þetta sér stakri n. Annars þykist ég vita, að nefndarmenn muni hafa misjafna trú á árangri slíkrar rannsóknar, hvort hún verði til sparnaðar eða ekki. Það er vitað, að laun þau, sem ríkið greiðir, geta ekki nema í fáum tilfellum talizt óhæfilega há. Hinsvegar eru laun margra starfsmanna ríkisins mjög lág, og stefnan virðist vera sú, að ekki hafi þótt fært að standa á móti því að bæta laun þeirra, er lægst voru launaðir, þegar till. um það hafa verið bornar fram, enda eru launaákvæðl. gömul og sett á tímum, sem voru mjög ólíkir þeim, sem nú eru. Annars verður um þetta að fara sem auðið er, og verður reynslan að skeru úr um það.
Við 2. tölul. höfum við tveir nm. flutt brtt. á þskj. 266. Í 2. tölul. aðaltill. er farið fram á rannsókn á aðeins einu ríkisfyrirtæki, eins og gert sé ráð fyrir, að á því megi sjálfsagt spara öðrum ríkisfyrirtækjum fremur. Okkur 2 nm., hv. þm. V.-Húnv. og mér, þykir ekki rétt að takmarka till. við þetta eina fyrir tæki. Þykir okkur réttara, að till. sé almenn og athuguð önnur ríkisfyrirtæki á sama grundvelli, eins og segir í 1. tölul. till.
Þá hafa og komið fram brtt. eða viðaukatill. við aðaltill. frá hv. 1. þm. S.-M. Um þessar till. eru óbundin atkv. í n., og skal ég ekki gera þær að umtalsefni hér, því að til þess hefi ég ekkert umboð frá flm., sem er fjarstaddur. Ef hann hefir óskað, að eitthvað yrði tekið fram um þær, þá hefir hann sjálfsagt beðið einhvern um það. En n. hefir óbundna afstöðu til þessara tillagna.
Við hinir sömu 2 þm. höfum og gert brtt. á þskj. 267 við 3. tölul. í brtt. hv. 1. þm. S.-M., og er hún að mestu leyti tóm orðabreyting. Við viljum láta orða þennan lið þannig: „Hvernig samræma megi með atbeina löggjafar launagreiðslur einkafyrirtækja, sem ekki falla undir 2. (undir) tölulið, launagreiðslum ríkisins.
Það er alkunna, að almenningur, sem á við sérstakt. erfið kjör að búa um þessar mundir, litur stórum augum á launatekjur starfsmanna ríkisins, og þá ekki síður þeirra manna, sem starfa við einkafyrirtæki. Hafi menn trú á, að hægt sé að spara stórfé á launagreiðslum ríkisins, þá er það ekki siður hægt á þessu sviði. Undir þetta svið heyra öll einkafyrirtæki. Menn kannast við, að laun þau, er ríkið greiðir, mega teljast lág samanborið við þau laun, sem einkafyrirtæki greiða eða eigendur þeirra greiða sjálfum sér
Hér er um stórum meiri sparnaðarvonir að ræða en eftir þáltill. Ef einhverjir vildu gera aths. við till. okkar, þá get ég beðið með að fara nánar út í efni hennar þangað til ef mótmæli eða aths. koma fram.