30.11.1933
Efri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í B-deild Alþingistíðinda. (185)

2. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Jón Þorláksson):

Ég skal fyrst víkja að till. á þskj. 216, sem hv. 2. þm. S.-M. mælti fyrir. í n. gat ekki orðið samkomulag um að mæla með því að hafa 2 kjördaga. Aðalástæðan var sú, að menn þóttust sjá fram á, að þar, sem þessu yrði beitt, gæti orðið úr því óeðlilegt aðhald að kjósendum um að sækja kjörfund, enda þótt þeir kærðu sig ekki um. Seinni dagurinn yrði notaður til að smala á kjörfund öllum, sem ekki komu fyrri daginn. Yrði þá harðar gengið að kjósendum en samrýmist anda frv. Hv. þm. nefndi það sem dæmi, að í hreppi, þar sem menn yrðu að sækja sjóveg til kjörstaðar, þar myndi kjörstjórn nota þessa heimild frv. og fresta kjörfundi. En ef menn vildu gera eitthvað fyrir þessa eyjaskeggja, þá sýnist eðlilegra að flytja kjörstaðinn til þeirra eða hafa þar annan kjörstað.

Þá fólst og í sömu brtt., að hv. flm. vildi láta lögleiða aftur, að viðurkenningu flokksstjórnar þyrfti til þess, að maður gæti orðið viðurkenndur frambjóðandi flokks í kjördæmi. Um þetta gat ekki orðið samkomulag í n. Ég skal taka það fram, að sú er venjan í flestum ríkjum Norðurálfu, að upplýsingar þurfa að liggja fyrir hjá kjörstjórn um það, til hvaða flokks hver frambjóðandi telst. En ég hefi ekki neinstaðar rekizt á ákvæði um það, að landsflokksstjórn þurfi að samþ. framboð í kjördæmi. Í því landi, þar sem kosningum mun frjálslegast til hagað, Svíþjóð, eru ekki höfð nein framboð. Þar býr kjósandi sjálfur til sinn kjörseðil og setur á hann nöfn þeirra, er hann vill kjósa, og það, til hvaða flokka þeir teljast, og eru þar allir skyldir að taka við kosningu.

Þá skal ég taka það fram, að um brtt. hv. 2. landsk. um færslu kjördags náðist ekki samkomulag í n. Sú till. kom fram í n. að hafa laugardag fyrir sunnudag, en hún náði ekki samþykki. Annars hygg ég, að n.menn láti sig það yfirleitt ekki miklu skipta, hvort kjördagur er í seinustu viku júnímánaðar eða fyrstu viku júlímánaðar.

Þá er till. hv. 3. landsk. á þskj. 234. Það hefir ekki komið til athugunar í n., hvort gera ætti kröfur til fleiri meðmælenda en frv. gerir ráð fyrir. Þó er ástæða til að athuga þetta, því að áður var það ákveðið, að samþykki flokksstjórnar þyrfti til, að frambjóðandi gæti komið fram í nafni ákveðins flokks, til þess að hindra utanveltuframboð. En það gæti einmitt verið ástæða til að krefjast hærri tölu meðmælenda, til þess að hindra slík utanveltuframboð. Ég álít hinsvegar, að ekki sé heppilegt að setja ekki ákveðna hámarkstölu meðmælenda. En eins og till, hv. 3. landsk. er, virðist hún bjóða mönnum upp á að fara í atkvæðasmölun undir því yfirskini, að verið sé að safna meðmælendum. Í frv. er girt fyrir þetta með refsiákvæði. Og ef hækkuð yrði tala meðmælenda, ætti þó að setja ákveðið hámark, til þess að hlífa kjósendum við því, að þeir yrðu eltir á röndum með blöð til þess að skrifa upp á.

2. brtt. hv. 3. landsk., við 85. gr. frv., er a. m. k. meinlaus. Hún segir ekki annað en það, sem lagt verður í hlutaðeigandi ummæli hvort sem er. Í fyrri málsgr. þessarar gr. segir, að það fylgist að, að maður afsali sér atkvæðisrétti í ákveðinni kjördeild og greiði atkv. annarsstaðar. Hefir það litla þýðingu að vera að taka þetta upp aftur.

Um 3. og 4. brtt. hv. þm. er í rauninni ekkert að segja. Samkv. till. hans eru engin takmörk sett fyrir því, hvað hægt er að hafa marga meðmælendur, og er þá að sjálfsögðu heldur ekki hægt að refsa fyrir að safna undirskriftum.

Hv. 3. landsk. fór nokkrum orðum um brtt. n., sérstaklega þá, að taka aftur upp heimild til að hafa landslista, þar sem á séu fleiri menn en frambjóðendur í kjördæmum. Hann sagði, að þetta vildum við hafa til þess að auka vald flokksstjórnanna hér í Rvík, og taldi það ekkert undarlegt, þótt við hv. 2. landsk. sem formenn stjórnmálaflokka vildum innleiða þetta ákvæði. En það er nú svo, að þegar löggjöf landsins og stjórnskipulag er sniðið eftir flokkaskipuninni, þá er eðlilegt og verður ekki hjá því komizt, að flokksstjórnir fái meiri viðurkenningu í löggjöfinni en áður. Við þetta er ekkert að athuga frá sjónarmiði þeirra, sem fella sig við þann grundvöll stjórnarfars landsins, að stjórnmálaflokkar hafi með höndum að skipa og skipta í þeim efnum. En allt, sem sagt hefir verið um það, að betur verði skipað í þessi sæti, ef kjósendur gerðu það en flokksstjórnir, er tal, sem á sér engan stað innan þessa frv. En hvaða kjósendur eru það, sem eftir þessu frv. eiga að hafa þessi áhrif? Aðalsmerkið til þess að geta hlotið uppbótarsæti er það, að hafa fallið við kosningar í kjördæmum og hafa ráð á nokkrum atkvæðafjölda eða nokkurri hundraðstöhi kjósenda í kjördæminu. Ef um það væri að ræða, hvort flokksstjórn ætti að ráða nokkru um þetta eða allur fjöldi kjósenda, þá gæti ég fallizt á, að hér ætti að gera samanburð um það hver hefði valdið. En ef um það er að ræða t. d., hvort fallinn frambjóðandi í fámennasta kjördæmi landsins fær 12 atkv. fleira eða færra, og ef sá munur á að ráða því, hver fær uppbótarsætið, þá sé ég ekki, að í því felist meiri trygging en þó að flokksstjórn hefði þessi áhrif.

Þó að hlutfallskosningar séu lögleiddar nú orðið í flestum ríkjum álfunnar og þar sé því síður þörf uppbótarsæta, hafa þó flest þeirra slík uppbótarsæti til þess að jafna milli hinna ýmsu flokka, þar sem löndunum er þó skipt í nokkur kjördæmi. Í sumum löndum er það svo, að þessi uppbótarsæti eru tekin af landslista, eins og t. d. í Tjekkóslóvakíu og víðar. Þessum landslista er teflt fram af flokksstjórn. Þykir ekkert athugavert við það, þar sem landslisti er notaður, að sameiginleg stjórn hvers flokks hafi að því er landslista snertir sömu áhrif og flokksstjórn í héraði hefir í raun og veru um framboð í kjördæmum. Að fara að tala um óeðlilegt vald flokksstjórnar, þó að svona sé, er ekki annað en fjarstæða. Það geta vitanlega alltaf orðið mistök um val frambjóðenda. En eigi annars að líta á dóm kjósenda sem einhvern hæstaréttardóm, þá ætti miklu fremur að líta svo á, sem frambjóðandi, er fallið hefir í kjördæmi, væri heldur búinn að fá á sig minnamannsmerki en hitt. A. m. k. ætti ekki að skoða það sem sérstakan verðleikastimpil. Ég segi þetta frá almennu sjónarmiði, til að hnekkja þeirri staðhæfingu, að einhver sérstök mistök hljóti að verða á þm.vali, þó að einhverjir fái að taka sæti á landslista, sem ekki hafa fallið við framboð í kjördæmum.

Hv. 3. landsk. varpaði fram þeirri spurningu, hvort girt væri fyrir það í brtt. okkar, að maður, sem býður sig ranglega fram undir merki ákveðins flokks, geti komizt á landslista. Fyrir þetta er girt með því, að annar frambjóðandi er fyrir af hálfu flokksins, og ákveður þá flokksstjórn, hvor þeirra skuli koma til greina.

Þá kem ég að brtt. hv. 2. þm. Árn. á þskj. 237. Hv. þm. virtist leggja þann skilning í ákvæði brtt. n., að tvímenningskjördæmi yrðu harðar úti um líkur fyrir jöfnunarþingsætum en önnur kjördæmi. Hann taldi, að nokkur ákvæði væru fyrir í frv., sem gerðu rétt tvímenningskjördæma hallari en einmenningskjördæma. Ég er þeirrar skoðunar, að hann hafi þar ekki rétt fyrir sér að því er snertir það atriði, sem brtt. n. tek því til. Hann nefndi Húnavatnssýslu, sem skipt hefir verið í tvö kjördæmi, og svo Skagafjarðarsýslu, sem enn er eitt kjördæmi. Vil ég biðja hv. þm. að leggja hinn sama mælikvarða á brtt. n. Mun hann þá komast að raun um, að tvímenningskjördæmi, sem fengið hefir einn þm. kosinn, hefir sömu líkur til að fá jöfnunarþingsæti og einmenningskjördæmi. Að öðru leyti get ég lýst yfir því, að mér er það ekkert kappsatriði, hvor reglan höfð verður. Tvímenningskjördæmi hafa eftir frv., eins og nú er, sama rétt, en vilji menn gera rétt þeirra meiri, þá er mér sama. Ég tel það einungis hugsunarréttara að hafa þetta eins og n. stingur upp á. En ég vil benda á það, að ef brtt. hv. þm. verður samþ., þá verður líka að breyta málsgr. síðar í sömu gr. (27. gr.) í samræmi við þetta.

Hv. 2. þm. Rang. sagði, að sérstaða hans í n. byggðist á því, að sér þætti óviðfelldið að leyfa tvennskonar fyrirkomulag á þessu. En það er nú ekki gott að komast hjá því að hafa tvennskonar fyrirkomulag á úthlutun jöfnunarsæta, því að stjskr. gerir beinlínis ráð fyrir því. Það er svo, að þegar hér ræðir um tvennskonar tilhögun, þá er annarsvegar sú, sem beita verður, þegar flokkur hefir ekki haft landslista í kjöri, en á þó tilkall til jöfnunarsæta. Að vísu er það svo að forminu til, að hér er um þrennskonar tilhögun að ræða, eða í raun og veru þó ekki nema tvennskonar, eins og þriðja brtt. n. ber með sér. Ég held þess vegna, að mótbára hv. þm. falli um sjálfa sig. Það er ekki hægt að komast hjá því að heita tveimur aðferðum um úthlutun jöfnunarþingsæta, nema með því að ganga beint á móti ákvæðum stjskr., og nú er það í sjálfu sér játað og viðurkennt af þeim, sem ekki vilja hafa nema eina tilhögun á landslista. En mótbárurnar gegn tvennskonar landslista verða í raun og veru ákaflega léttvægar, þegar mismunurinn á formi þeirra snýr alls ekki að einstökum kjósendum. Atkvgr. kjósendanna fer fram með nákvæmlega sama hætti. Heldur kemur mismunurinn aðeins fram í mismunandi reglum í starfi landskjörstjórnar. Ég tel þetta ekki svo mikinn ókost, að ástæða sé til þess vegna að þrengja að ákvæðum stjskr.

Ég er áður búinn að gera fullkomna grein fyrir því, að í öðru tilfellinu er það flokksstjórnin, en í hinu tilfellinu aðeins fámennur hópur af kjósendum flokksins, sem fellir úrskurð um það, hver skuli hljóta þingsæti af listanum. Í fjölmennum flokki eins og Sjálfstfl., sem hefir um 18 þús. kjósendur, verður svo litið úr áhrifavaldi flokkskjósenda yfirleitt um það, hverjir hljóta uppbótarsætin, þegar það getur oltið á tæpum 200 atkv. í einu litlu kjördæmi, hvort þessi eða hinn af frambjóðendum flokksins á landslista hlýtur þingsæti. Ég get þess vegna ekki fallizt á þá ályktun hv. þm., að önnurhvor reglan verði að víkja. Mér sýnist, að þær geti staðizt báðar, af því að þær valda engum ruglingi í atkvgr. einstakra kjósenda. Ýmislegt annað af því, sem hv. þm. sagði, voru mótbárur gegn því, að úthlutun uppbótarsæta færi eftir tillögum flokksstjórna, svo sem t. d., að þá yrðu flokkshagsmunir látnir sitja fyrir þjóðarhagsmunum. Það getur að vísu litið svo út fyrir fámennum flokki. En fyrir allan fjöldann í stærri flokkunum verður niðurstaðan sú sama, hvort sem flokksstjórnin raðar mönnum á lista, eða að kosning í uppbótarsæti fer, eins og ég áður benti á, eftir kjöri fárra manna í einstökum kjördæmum. Í báðum tilfellunum, hvort sem landslistaframbjóðendur eru jafnframt í kjöri í einstökum kjördæmum eða ekki, þá verða þeir jafnt fyrir barðinu á kjósendum við kjörborðin. En það virðist þó sennilegra, að útnefning flokksstjórnar verði jafnan í meira samræmi við vilja flokksins í heild. Ég held það séu einmitt meðmæli með brtt. n., að flokkunum sé gefinn kostur á að velja um báðar aðferðirnar, til þess að reynslan fái að skera þar úr og sýna, hvor aðferðin verður betri. Og þar sem nú er verið að útbúa ný kosningalög, sem fela í sér margar og óreyndar breyt. á kosningatilhögun þeirri, sem nú er, þá verður að láta reynsluna skera úr um það í svo mörgum atriðum, hver aðferðin verður betri og hver lakari.

Hv. 2. þm. Rang. vildi halda því fram, að flokksstjórnir hefðu ekki samskonar aðhald samkv. brtt. n. um val frambjóðenda á landslista eins og þær hafa nú við hlutfallskosningar. Það er rétt, að þetta getur átt við um flokk, sem hefir frambjóðendur í öllum kjördæmum. En flokkur, sem hefir ekki frambjóðendur nema í 1/3 hluta eða helmingi af kjördæmum landsins, og getur hinsvegar fengið reyting af atkvæðum um allt land, hann hefir, að ég held, alveg samskonar aðhald um að velja góða menn á lista sinn eins og sá flokkur, sem nú ber fram lista við hlutfallskosningar.

Þá kvaðst hv. 2. þm. Rang. ekki vera ánægður með ákvæðin um það, hvernig atkv., sem greidd eru frambjóðendum á landslista, eru látin koma til greina við endanlega röðun, og vildi hv. þm. draga úr þessum áhrifum á þann hátt, að atkv., sem greidd væru frambjóðanda í kjördæmunum, kæmu fyrr til greina til ákvörðunar um röðun frambjóðenda á listunum. Hinsvegar hélt hann því fram, að þau kæmu til greina síðar. Það er að vísu rétt, en þá þýðir það, að þau verka með minni þunga. Ég er hv. þm. alveg ósammála um þetta; ég álít réttara, að þau atkv., sem eingöngu eru greidd landslista, ráði meira um röðun frambjóðenda á listanum. En ég hefi ekki þorað að orða þá tilhögun, að þau réðu öllu, af því að sá flokkur, sem hefir frambjóðendur í öllum kjördæmum, fær svo fá atkv. greidd landslista út af fyrir sig, að það þykir máske ekki rétt að láta þau ein ráða. En þó er það nær sanni heldur en að þeir kjósendur ráði einir röðun á landslista, sem ekki gefa listanum atkv., heldur frambjóðendum í einstökum kjördæmum. Það stendur svo fyrir mér, að það sé óréttlátt að láta þá kjósendur ekki fá meiri áhrif á röðun landslista, sem kjósa hann, heldur en hina, sem greiða atkv. sitt frambjóðendum í kjördæmum. Gallinn á því að láta atkv. í kjördæmakosningu ráða mestu eða öllu, er sá, að kjósendur flokks, sem ekki kemur frambjóðanda að í því kjördæmi, vita lítið, hvern þeir eru að kjósa, þegar listinn er óraðaður. Þeir vita þó meira um það í hinu tilfellinu, þegar raðað er á lista fyrirfram.

Hvað snertir þetta ágreiningsmál, um ákvörðun uppbótarsæta á landslista, þá held ég það sé réttast að hafa tilhögunina svo frjálslega sem stjskr. framast heimilar, og láta svo reynsluna skera úr því, hvað hentast þykir í framtíðinni.