04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í D-deild Alþingistíðinda. (1877)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Hv. þm. Vestm. hefir hér á þskj. 94 borið upp ýmsar spurningar viðvíkjandi skilanefnd síldareinkasölunnar. Skal ég svara þeim eftir því, sem ég réttast veit.

Fyrsta spurningunni, hvort skilanefnd starfi ennþá, er því að svara, að svo er. Hún verður auðvitað að starfa þangað til skiptum í þessu þrotabúi er lokið.

Þá er önnur spurningin: Hver eru hin daglegu störf nefndarinnar? — Hin daglegu störf eru þau, sem lúta að málum þeim, sem síldareinkasalan á i, bæði innanlands og utan, og skýrði ég nákvæmlega frá því í fyrra, hver þau væru, þegar sami hv. þm. bar fram fyrirspurn um þessi mál. Mér er tjáð af skilanefndarmönnum, að það sé ekki búið að ljúka nema þremur af þessum málum ennþá. Og um niðurstöðurnar er mér tjáð, að í tveimur þeirra hafi síldareinkasalan verið sýknuð, en í einu hafi hún verið dæmd til að greiða nokkurn hluta af kröfunni sem almenna skuld. Það voru síldarsaltendur, sem hófu þetta mál á hendur síldareinkasölunni. En mér er líka tjáð, að einhver af þessum málum fari e. t. v. áfram til hæstaréttar. (FJ: Eru þetta vinnulaun?). Það eru söltunarlaun.

Þá eru það laun skilanefndarmannanna. Þar til er því að svara, að þau voru, eins og tekið var fram í fyrra, 1200 kr. á mánuði til að byrja með hjá hvorum, en á þeim tíma, sem fyrirspurnin kom fram í fyrra, voru þau komin niður í 800 kr., og eru nú 600 kr. á mánuði. En annar þessara manna er hæstaréttarmálafærslu maður, og tjáir n. mér, að í þessari greiðslu til hans séu falin málaflutningslaun fyrir þau mál, sem hann rekur fyrir einkasöluna, en það eru öll mál hennar, sem rekin eru hér á landi, og meðal þeirra er, eins og kunnugt er frá í fyrra, mál, sem Landsbankinn á í við einkasöluna, mjög stórt, um 300 þús. kr. Og ef ætti að greiða fyrir það sérstaklega, þá væri það mikið fé. (TT: En fyrir hvað fær hinn þá launin?). Það er ekki ennþá búið að innheimta allar skuldir eða selja alla síld, og geri ég ráð fyrir, að hann starfi að því. Þá var spurt um það, hvort launin eigi að haldast óbreytt um óákveðinn tíma. Um það er ekki ennþá neitt ákveðið, en ég hefi hugsað mér, að launin hljóti að lækka eftir því sem störfin minnka. En meðan mál eru gangandi er ekki hægt að skipta búi einkasölunnar.

Þá var ennfremur spurt um, hversu marga starfsmenn n. hefði haft á launum síðan í des. 1931, er hún var stofnuð, hverjir það séu og hvað þeir hefðu fengið í laun frá byrjun. Ég skal svara þessu með því að lesa hér upp kafla úr bréfi frá skilanefndinni:

„Eins og augljóst hlýtur að vera, þar sem um svo umfangsmikið verk hefir verið að ræða, hefir n. orðið að hafa töluverðan kostnað í sambandi við sölu og innheimtu á eignum og allt annað, er búið varðar. Hefir því n. haft fyrrv. skrifstofustjóra síldareinkasölunnar í sinni þjónustu og greitt honum sama kaup og hann hafði meðan hann var í þjónustu einkasölunnar, 600 kr. á mánuði. Nú, eftir að sölunni er að mestu lokið og skrifstofustörfin mikið farin að minnka, hefir n. sagt honum upp, og er hann frá 1. n. m. ráðinn hjá Útvegsbanka Íslands, en við gerum ráð fyrir að þurfa að hafa hann við og við til aðstoðar að einhverju leyti, gegn þóknun. Um tíma varð n. að hafa skrifstofustúlku, en hún er löngu farin. Laun hennar voru kr. 175.00 á mánuði. Stuttan tíma var og tekin stúlka fyrir 50 kr. á mánuði. N. hefir leigt eitt herbergi fyrir sig hjá Sambandi ísl. samvinnufél. og hefir greitt fyrir það 95 kr. á mánuði. Frá 1. okt. hefir n. samið svo um, að Sambandið noti þetta herbergi að hálfu, og greiðast því nú aðeins 47,50 kr. á mánuði fyrir skrifstofuafnot. Síma hefir n. haft allan tímann og mun verða að hafa framvegis. frá 1. des. næstk. er því fastur kostnaður við búskiptin aðeins laun skilanefndarmanna, sími og hálft herbergi sem skrifstofa, en vitanl. verður að áætla einhvern kostnað þess utan, svo sem símtöl og skeyti, réttargjöld, þýðingar o. fl., og loks greiðslu til málafærslumanns búsins í Svíþjóð“.

Þá kemur ennþá einn liður fyrirspurnarinnar: „Hvað liður skaðabótamálunum, sem n. fór í við sænska síldarkaupendur?“ — Þau mál eru ekki búin ennþá, og ég get ekki sagt, á hvaða leið þau eru. En í sumar fór fram umfangsmikil vitnaleiðsla í þessum málum á Siglufirði. Ég er ókunnugur þessum málarekstri, en það veit ég, að skilan. gerir sér nokkrar vonir um að fá þarna allalitlega fjárhæð. Hvort það á við rök að styðjast, skal ég ekki neitt fullyrða um.

Svo er seinasta spurningin, „hvort komið sé í ljós, hve mikið sé tapað af þessari einu millj. króna, sem ríkissjóður og Landsbankinn attu hjá einkasölunni“. — Það er auðvitað ekki komið í ljós, og kemur ekki fyrr en búskiptum er lokið. Og ég stend ekki neitt nær um að vita þetta nú en í fyrra, þegar fyrirspurnin kom fram frá sama hv. flm. — Ég skal svo ekki að sinni fjölyrða um þetta.