04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í D-deild Alþingistíðinda. (1878)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Fyrirspyrjandi (Jóhann Jósefsson):

Hæstv. ráðh. hefir nú farið fljótt yfir sögu, a. m. k. um suma liðina. Upplýst er, að skilan. er ennþá starfandi, og það sem meira er, að henni er ætlað að starfa sem slíkri á meðan þessi málaferli standa yfir. Eins og ég áður sagði, er hún búin að starfa í tvö ár, og af 13 málum segir ráðh., að þrem sé nú loksins lokið. Geta menn því gert sér í hugarlund, að líða muni ar og dagar þar til n. verði uppleyst. (Dómsmrh.: Það er ekki víst, að þessum þrem málum sé lokið. Þeim getur orðið áfrýjað). Jæja, ekki einu sinni það. Ég held, að margir myndu nú líta svo á, að það hefði verið ástæða til fyrir löngu að leysa upp þessa skilanefnd og hafa málaflutningsmann við þessi störf, eins og venja er til.

Þá minntist hæstv. ráðh. á það, hverjir hefðu starfað hjá skilan. undanfarið, og talaði um skrifstofustjóra þann, sem fyrr hefði verið hjá einkasölunni, tvær stúlkur o. s. frv. Allt þetta og ýmislegt fleira átti nú að breytast til batnaðar, eftir því sem ráðh. sagði, 1. des. síðastl. Og það er gott að heyra, að nú á að fara að sýna sparnað í sambandi við það, sem óunnið er að þessu stóra gjaldþroti, því að það er eðlilegt, að þær spurningar rísi í hugum manna, hvort hið mikla hrun síldarútvegsins og töpin, sem af því leiddi, eigi að verða nokkurnveginn stöðug gullnáma fyrir einstaka menn í þjóðfélaginu. En ég hygg, að þrátt fyrir upplýsingar hæstv. ráðh. um aukakostnað við n. skorti ennþá einhverja liði. Ég hefi t. d. sannfrétt, að formaður stjórnar síldarbræðslu ríkisins hafi verið, ef hann er það þá ekki ennþá, umboðsmaður skilan. á Siglufirði, og að annar heiðursmaður hafi verið umboðsmaður hennar á Akureyri. Á þessa liði minntist hæstv. ráðh. alls ekki. Þess vegna vil ég leyfa mér að spyrja, hvað þessir tveir,menn hafi borið úr býtum við þessi störf. E. t. v. er eins með þá og hina, að skilan. hefir allt í einu tekið sig til að segja þeim upp frá 1. des., og ekki ómögulegt, að það standi í sambandi við þessa fyrirspurn, sem hér er borin fram. Í svarræðu sinni á seinasta þingi, þar sem talað var um málaferlin, minntist hæstv. ráðh. sérstaklega á málaferlin utanlands og kom að því, að skilan. væntir sér álitlegrar fúlgu út af viðskiptunum við Svía. Ég drap á það áður, að málin erlendis út af þessu fyrirtæki geta verið tvíeggjað sverð, því að ef þau væru hafin á vafasömum og e. t. v. ranglátum grundvelli, myndu þau skaða álit landsins út á við, því að hér er það ríkisstj., sem stendur að baki. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, drepa dálítið á það, sem sagt er um þessi málaferli í „Göteborgs morningspost“. Það, sem ráðh. telur, eftir skilan., að sé þannig til komið, að vænta megi af álitlegrar fjárfúlgu, er þetta skaðabótamál, sem blaðið greinir fra. Blaðið skýrir fyrst og fremst frá því, að einkasalan hafi verið ríkisfyrirtæki og á hinum stutta tíma, sem hún hafi starfað, frá 1928–1931, hafi hún gert mikið tjón meðal hinna gömlu síldarviðskiptamanna Íslendinga, vegna þeirra aðferða, sem notaðar voru til þess að sýna einræði einkasölunnar á markaðinum. Svo er sagt frá dæmi um þetta og þeirri misklíð, sem af þessum aðferðum hlauzt. Þar koma inn í þau málaferli, sem skilan. einkasölunnar hefir nú höfðað á móti einu alþekktasta síldarkaupendafirma í Svíþjóð, hlutafél. Pontus Nielsen. Þar er sagt, að málaferlin séu höfðuð á þeim grundvelli, að kaupandi hafi ekki haldið samning sinn, en fullyrt um leið, að einkasalan hafi ekki haldið gefin loforð um frágang síldarinnar, og að einkasalan hafi ekki einu sinni hirt um að láta þá, sem áttu að salta þessa síld handa firmanu, fá afrit af kaupsamningnum, svo að þeir gætu séð, hvernig þeir ættu að útbúa vöruna. Það er sannarlega ekki útlit á, að þetta mál muni bæta mikið álit íslenzkrar síldar í Svíaríki, því að blaðið skýrir frá því, hvernig svikizt hafi verið um að verka síldina. Hún hafi verið söltuð úr ónýtu salti og e. t. v. með því salti, sem kunnugt er nú, að einkasalan hafði um tíma — salti með fiskúrgangi í —, og á allan hátt hafi síldin verið illa meðfarin. Við skulum segja, að blaðagrein sé ekki sönnunargagn í þessu máli. En svo ýtarleg sem hún er, þá gerir hún álit síldarsaltenda sýnu verra og spillir fyrir viðskiptum landsins, einmitt við Svíþjóð. Nú var haldið mikið réttarhald í þessu máli 23. maí 1933. Þar var leiddur sem vitni maður, sem um 40 ára skeið hefir fengizt við síldarverkun og síðan 1926 hefir farið til Íslands til síldveiða og síldarkaupa. Þessi maður heitir Erlandsen og er umboðsmaður fyrir Samvinnufélag Svía (Kooperativa Förbund), sem stendur að síldarkaupunum. Og þar sem hann sjálfur hefir getað fylgzt með verkun síldar þeirrar, sem málið er höfðað út af, má telja líklegt, að til hans verði tekið allmikið tillit. Hans vitnisburður er afarlangt mál, og vil ég einungis drepa á nokkur atriði, sem eru fellandi fyrir síldareinkasöluna. hér segir hann m. a.: Í lok júní og ágúst 1931 var síldveiði á Siglufirði meiri en á Akureyri. Kærandi, (þ. e. einkasalan) notaði bæði gott og vont salt, og vitnið hafði athugað, að jafnvel steinsalt hafði verið notað í síldina. Þess háttar salt inniheldur kalk í stórum stíl. Afleiðingin er sú, að þannig söltuð síld verður grá á litinn, þegar hún hefir legið í saltinu. Í ágúst 1931 hafði komið til Siglufjarðar salt frá Noregi til einkasölunnar. Í þessu salti var fiskúrgangur, sem benti á það, að þetta salt hefði áður verið notað til að salta með fisk, og hefði kærandi gert aths. um þetta til hins norska seljanda. Vitnið vissi ekki hve mikið hefði verið notað af þessu salti. Vitnið áleit, að kærandi hefði 1931 notað betra salt við fyrri saltanir en þær saltanir, er fram fóru, er á leið sumarið, og getur það stafað af því, að saltlítið var orðið á Íslandi. Vitnið hafði tekið eftir því, að það fólk, sem árið 1931 átti sérstaklega að líta eftir síldarsöltun fyrir einkasöluna, hafði sýnt af sér kæruleysi við vinnuna.

Það er ekki líklegt, þegar vitni ber eins og hér er gert, að einkasalan hafi mikið upp úr því að klaga yfir, að vörunum hafi ekki verið veitt móttaka, fyrst svona er í pottinn búið. Ég skal ekkert fullyrða um, hvernig svona mál kann að fara, en ég endurtek það, að að fara í málaferli með svona forsendum verður til þess að vekja almennt umtal erlendis, eins og orðið hefir, baeði um það, hversu hrapallega hefir mistekizt með síldareinkasöluna, hversu pólitík hefir þar verið látin spilla fyrir gömlum og reyndum verzlunaraðferðum, hversu mikið kæruleysi hefir verið sýnt við verkun þessarar framleiðsluvöru o. s. frv. Að þessu athuguðu hygg ég, að ekki sé víst, að eins mikill ávinningur verði að þessu og gefið er í skyn. Það getur auðvitað vel verið, að skilan. sjái sig til neydda að halda þessum málaferlum áfram, úr því að hún hefir nú einu sinni hafið þau, en mér virðist, að átt hefði fyrir löngu að haga þessari uppgerð einkasölunnar á einfaldari hátt og með minni tilkostnaði. Málaferlin virðist mér hefði mátt láta málfærslumann annast á venjulegan hátt. Ég vil ekki fyrirfram slá því föstu, að það sé sjáanlegur ávinningur að hafa málaflutningsmann á föstum launum, í stað þess að greiða honum eins og annars myndi hafa verið gert. En það er e. t. v. ekki höfuðatriðið, heldur hitt, hvort þessi málaferli hafi verið þörf. Mér er nær að ætla, að mikill hluti þeirra hafi verið óþarfur. En hinsvegar heyri ég, að ráðh. býst við, að skilan. sitji og starfi þangað til yfir lýkur um öll þessi málaferli, og það getur vel orðið — ekki tvo, heldur tuttugu ár. Þetta eru 13 mál, og þrjú eru nú komin svo langt, að þau hafa verið dæmd í undirrétti, og allt verða þetta sjálfsagt hæstaréttarmál. Ég álít fulla ástæðu til, að þingið geri ályktun um að koma þessu fyrir á annan hátt. Um málin þarf ekki að fjölyrða hér. Það hefði verið eins gott að láta þau vera í höndum einhvers málafærslumanns eins og að láta n. sitja og bíða úrslitanna. —

Ég vil vona, að hæstv. ráðh. geti upplýst um þessa tvo menn, sem ekki voru nefndir, en fullyrt er af kunnugum, að hafi verið á launum hjá skilan. um óákveðinn tíma, ef þeir eru það ekki ennþá.