04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í D-deild Alþingistíðinda. (1881)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég vil benda á, að skilan. er skipuð til þess að fara með þetta þrotabú og skipta því. Það er því ekki hægt að ætlast til þess, að n. hætti einhverntíma löngu áður en hægt er að skipta síðustu leifum þeim, sem eftir verða. Það eina, sem til mála gæti komið, er að athuga um laun þessara manna, en um þau hefir ekki verið neitt ákveðið ennþá, svo að ég er óbundinn með það. Þegar ekkert er nú orðið eftir annað en að flytja þessi mál, horfir launagreiðslan allt öðruvísi við.

Viðvíkjandi þessum umboðsmönnum, sem hv. fyrirspyrjandi nefndi, verð ég að játa, að ég hefi alls ekki heyrt neitt um þá, og ef þeir eru til eða hafa verið til, þá eru þessar upplýsingar, sem ég hefi fengið frá skilan., villandi. En ég skal með ánægju, ef hv. þm. vill, spyrja þá sérstaklega um þetta. En ég hefi aldrei verið um það spurður, hvort n. ætti að hafa umboðsmenn, og veit ekki til þess, að hún hafi haft þá.

Þá ræddi hv. þm. nokkuð um málin í Svíþjóð, sem munu vera þrjú, en mér skildist hann ræða einungis um eitt þeirra, og má vera, að það sé það málið, sem erfiðast liggur fyrir. Svo að þrátt fyrir þessar upplýsingar getur n. haft allmikið upp úr þessum málaferlum í Svíþjóð. Annars þekki ég ekki nokkurn skapaðan hlut inn á, hvernig þessi mál eru vaxin, en hitt veit ég, að það er ekki rétt að kveða upp neinn dóm um það, hversu mál horfa við, eftir frasögn í einu blaði. Sú frásögn getur verið villandi og hlutdræg, þótt ég segi ekki, að hún sé það í þessu tilfelli. Ég veit ekkert um það. En hv. þm. sér það strax, að ekki er hægt að taka það sem neitt goðasvar, þótt hann sjái eitthvað í blaði um málið. Annars er nú afstaða mín í þessu máli gamalkunnug, sú, að ég var gersamlega á móti stofnun síldareinkasölunnar. En auðvitað vil ég svara algerlega hlutlaust og rétt því, sem ég er spurður um. Og það hefi ég reynt að gera í þessu stutta svari.