05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í D-deild Alþingistíðinda. (1888)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Fyrirspyrjandi (Jóhann Jósefsson):

Í svari sínu fór hæstv. dómsmrh. alveg framhjá því, sem spurt var að í 3. lið fyrirspurnarinnar, sem sé því, hve mikið sé búið að greiða til skilanefndarmannanna. Þá hefir það og heldur ekki fengizt upplýst, sem spurt er um í 4.–5. lið fyrirspurnarinnar, hversu marga starfsmenn nefndin hafi haft á launum, og hve mikið hver um sig hafi haft í laun. Hefir töluvert verið talað um það mikla kaup, sem skilanefndarmennirnir hafi haft. Það er upplýst, að þeir hafi fyrst haft 1200 kr. á mán., svo 800 kr. og síðast 600 kr. En hve lengi þeir hafi haft t. d. 1200 eða 800 kr., er ekkert upplýst um. Þetta verð ég að telja óskýr svör. Ég óska eftir að vita, hvað kostnaðurinn er allur orðinn mikill við þetta fyrirtæki. Það hefir nú komið fram, að ekki hefir verið ausið fé í alla, sem við þetta hafa unnið. Þannig er talið, að stúlkur, sem unnu hjá þessum húsbændum með 1200 kr. mánaðarlaunin, hafi ekki fengið nema 50 kr. á mánuði. Ég óska, að hæstv. ráðh. gefi skýr svör um það, hve miklu fé hefir verið varið til þessa tíma í störf skilanefndar. Þetta hefir hæstv. ráðh. ekki upplýst enn, og sennilega eru allir hv. þdm. jafnfróðir um þessa hluti eftir ræður hans. En jafnvel þó hvor nefndarmaður fyrir sig hafi ekki nema 600 kr. á mánuði, sem ekki mun hafa verið svo lágt nema nú nokkra síðustu daga, þá má nærri geta, hvort starfið er orðið svo mikið, að ráðstafa þessum síðustu reitum síldareinkasölunnar, að til þess þurfi tvo framkvæmdarstjóra með á áttunda þús. kr. árslaun hvorn.

Þá virðist ganga tregt að fá upplýsingar viðvíkjandi umboðsmönnum skilanefndar á Akureyri og Siglufirði, en ég hefi fyrir satt, að þessum mönnum hafi verið borguð laun fyrir óákveðinn tíma. Ég vil þá spyrja hæstv. ráðh. til viðbótar við það, sem prentað er á fyrirspurninni, hvort hann áliti ekki, að sú skoðun sé rétt, að eitthvað megi draga saman seglin með þennan kostnað. Hér eftir virðist ekki vera nema um einhvern málarekstur að ræða, sem sennilega gengur áfram, þó ekki sé lagt í mikinn kostnað.

Í sambandi við svar hæstv. ráðh. í gær um það, að sá maðurinn í skilanefndinni, sem er hæstaréttarlögmaður, ætlaði að taka laun sín í skilan. sem greiðslu fyrir málaflutning fyrir þrotabú einkasölunnar, var spurt um það, hvað hinn maðurinn í nefndinni ætti að gera fyrir sín laun, en um það hefir ekki fengizt skýrt svar.

þá taldi hæstv. ráðh., að varlega mætti treysta blaðagreinum í því að segja rétt frá málaferlunum við hin sænsku firmu, en ég vil benda honum á, að hér er ekki aðeins um blaðaummæli að ræða; ég hefi í höndum útskrift úr ráðhúsréttarbók Gautaborgar. Ég sæki ekki mínar heimildir í blaðagreinar, heldur í útskrift úr réttarbókunum sjálfum. Þegar gætt er að svari hæstv. ráðh. við fyrirspurn minni á síðasta þingi út af starfi skilanefndar, segir hann þar, að stjórn einkasölunnar hafi veturinn 1930–31 gert stóra samninga við fjögur síldarfirmu í Svíþjóð um sölu á 13500 tn. af síld, en firmun hafi svo ekki tekið á móti nema rúmlega 3500 tn. og borið því við, að síldin væri ekki samningshæf. Nú væri, segir ráðh., búið að höfða mál á þessi firmu, og gerir skilanefnd sér vonir um álitlega fúlgu í skaðabætur. Það þarf nú engan málafærslumann til að skilja það, að sá, sem keypt hefir einhverja vöru, en neitar að veita henni viðtöku, hefir þar hyrningarstein undir sínum málstað, ef hann getur sannað, að varan hafi ekki verið samningshæf. Nú vil ég taka það fram, að hað er upplýst í einu af þessum málum, og þær upplýsingar eru ekki úr neinum blaðagreinum, heldur útskrift úr ráðhúsrétti Gautaborgar, þar setu frá því er skýrt, að tveir menn, kaupmaður Svendsson og lagerer Petersson, hafi gefið álit um eitt af þessum síldar-„partíum“ og unnið eið að því fyrir rétti. Í álitinu segir m. a. á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta. (Ég ætla að lesa kaflann á sænsku, svo ég verði ekki sakaður um að brjála frásögnina í þýðingu):

„Vid besiktningen, som övervars av Isländska sillmonopolets ombud Herr Direktör A. Sandin, opnades och besiktigades tio tunnor av den rensade och huvudskurna sillen. Sillen i dessa tunnor synes, enligt vår mening, ha varit gammal och alltså icke fullt frisk då den saltades. I tunnorna förekom även härsken sill, och i bukarna på sillen funnos rester av stelnad blod. På grund av att sannolikt orent salt begagnats, var laken mycket grå och lerblandad, varför på sillen avsatts en smutsgrå fårg. Sillen var ävenledes blandad med små och mager sill.

Av partiet J.—S. öppnades fyra tunnor, och befunnos filéerna vara saltade med groft salt. Gamla och förut begagnade tomtunnor hade har använts.

På grund av dessa förhållanden anse vi icke partiet uppfylla de í avtalets gjorda bestämmelserna och kan ej heller anses som fullt prima handelsvara.“

Þetta er nú álit þessara eiðsvörnu manna um a. m. k. eitt af þeim síldar„partíum“, sem málin standa nú um. Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. flestir skilji sænskuna, en þeim til leiðbeiningar, sem það gera ekki, skal ég geta þess, að í fám orðum sagt er síldin talin af þessum eiðsvörnu mönnum alóhæf markaðsvara, er fylli ekki upp þau skilyrði, sem þarf til þess að teljast „príma vara“; óhreint salt, gömul síld og gamlar tunnur er lýsingin á þessari vöru. Nú getur ekki verið, að þessir gallar hafi verið án vitundar síldareinkasölunnar og skilanefndarinnar, því svo mikil mistök voru á síldarsöltuninni fyrir norðan þetta sumar. Það er upplýst, að sent var til landsins það sumar gamlar tunnur og notað salt. Það er því hrein vitleysa að leggja út í mál á svona grundvelli. Enda kom það í ljós, að vitnin dæma síldina ekki samningshæfa.

Hv. þm. Ísaf. talaði um , að ég væri að flytja malstað útlendinga hér í d. Ég vil benda honum á, að hér er enginn dómstóll í þessum málum. Alþingi ræður engu um það, hvaða mál vinnast eða tapast í Svíþjóð, en hitt má ræða hér, að það hefir verið óhyggilegt af stjórn og skilanefnd að leggja út í svo hæpin málaferli sem þessi síldarmál bersýnilega eru, og tel ég mig vinna þarft verk mínu eigin landi og þjóð með því að benda á þetta.

Harmagrátur þessa hv. þm. út af afdrifum einkasölunnar kemur heldur seint og verður að skoðast sem einskonar eftirhreytur. Það er búið að þaulræða það mál, bæði hér á Alþingi og annarsstaðar, og öllum orðið ljóst, að ekki var um annað að gera en að leggja einkasöluna niður þegar það var gert, eins og til hennar hafði verið stofnað og hér meðhöndluð, m. a. af flokksbræðrum þessa hv. þm. Um það þarf ekki að deila úr þessu. Það nægir í þessu sambandi að benda á þá einföldu staðreynd, að einkasalan greiddi síldareigendum síðasta sumarið, sem hún starfaði, 2 kr. út á hvert mál af síld, sem hún fekk, en í fyrravetur var komið í ljós, að svo bágborinn var hagur einkasölunnar, að skilanefndin vildi endurheimta miskunnarlaust þessar vesölu 2 kr., og kom annar nefndarmaðurinn á fund sjútvn. í fyrra, til þess að færa rök fyrir því, að síldareinkasalan ætti þessa kröfu á hendur sjómönnum og útgerðarmönnum. Nei, sá, sem vill taka að sér að verja gerðir einkasölunnar, allt sukkið, óstandið og óreiðuna, hann hlýtur algerlega að vera blindur fyrir hagsmunum þeirra manna, sem skiptu við einkasöluna. Og þó ríkisstj. hefði skjót handtök, er hún var að leggja hana að velli, þá á hún sízt ámæli skilið fyrir það. En ég tók eftir því í ræðu hv. þm. Ísaf., þótt hann virtist hafa mikla tilhneigingu til þess að draga skilanefndarmennina undan ámæli í sambandi við þetta mál, og það skal ég ekki lá honum, hvort sem það var nú sprottið e. t. v. af persónulegum ástæðum eða flokkslegum tilhneigingum, að hann kannaðist við Það, að kostnaðurinn við gjaldþrot einkasölunnar væri óhæfilega mikill, og það er einmitt það, sem ég er að benda á með fyrirspurnum mínum og aths.

Það, sem ég hefi viljað draga fram hér á Alþingi og gera ljóst, er, að það hefir verið og er varið óhæfilega miklu fé til þess að koma reitum einkasölunnar í lóg. Og það er óhæfa af þinginu að vera að rífast og þrefa um dýrtíðaruppbót og smávægilega uppbót á lægstu laun starfsmanna ríkisins, meðan það þegir við slíkri meðferð á ríkisfé, sem átt hefir sér stað í því starfi, sem hér hefir verið rætt um, að gera svokölluð skil á þrotabúi síldareinkasölunnar.

Í sambandi við málflutninginn, sem hæstv. ráðh. minntist á, vil ég gera fyrirspurn til hans um, hvað rétt muni vera í því, sem heyrzt hefir. Ég hefi nefnilega skilið það svo, að hæstaréttarmálaflutningsmaðurinn í skilanefndinni annaðist málflutning fyrir einkasöluna, og nú vil ég spyrja, hvort það muni vera rétt, að félagi þessa manns við málflutningsstörf hafi tekið að sér að flytja málin móti einkasölunni. hað hefir heyrzt, að þessir tveir félagar verji og sæki þessi mál hvor á móti öðrum, að firmað velti þannig málunum á milli sín, þannig að þegar annar fálaginn sé í austri, þá sé hinn í vestri hvað sókn og vörn snertir í sama máli. Það væri óneitanl. fróðlegt, ef hæstv-. ráðh. gæti upplýst, hvað hæft er í þessu.