05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í D-deild Alþingistíðinda. (1890)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Þær eru nú að verða nokkuð margar fyrirspurnirnar til mín í þessu máli. Mér skilst helzt, að hv. þdm. álíti, að ég hafi ekkert annað að gera en að híma yfir þessari skilanefnd og athuga, hvað hún starfar bæði hér og erlendis. Ég lít svo á, að þegar búið er að skipa skilanefnd í þrotabú, þá hafi ríkisstj. ekki annað með hana að gera, nema hún sé sérstaklega spurð, en að athuga eftir á, hvernig hún hefir unnið sitt starf.

Það er ekki rétt hjá hv. þm. Vestm., að það sé tregt um svör hjá mér í þessu máli. Þó skal ég jata, að svarið, sem ég gaf við einni fyrirspurninni í gær, var ekki fullnægjandi, og það var um heildarkostnaðinn. Ástæðan til þess var sú, að ég sendi skilanefnd eitt eintak af fyrirspurninni og fékk hjá henni svör við þessum lið, en mér vannst ekki tími til þess að bera þau svör saman við fyrirspurnina áður en til umr. kom og það varð ljóst, að þessi svör voru ekki fullnægjandi. Það er því rétt, að við þessum lið vantar fullnægjandi svör, en til þess að hv. þm. geti ekki sagt, að ég vilji ekki gefa þau, vil ég mælast til þess, að umr. verði enn frestað, svo að mér gefist tími til að afla þeirra upplýsinga, er vantar. Annars veit ég ekki, hvaða ástæðu ég ætti að hafa til þess að reyna að stinga nokkru undir stól í þessu efni, og vísa ég öllum getsökum í þá átt gersamlega á bug.

Hv. þm. sagði, að ég hefði ekki gefið það upp, hve lengi skilanefndarmennirnir hefðu haft hærri launin og hve lengi lægri launin. Ég sagði, að þeir hefðu haft 1200 kr. kaupið allt fyrsta árið, 800 kr. annað árið og 600 kr. frá lokum annars ársins, en hve lengi það kaup verður greitt, get ég ekki sagt nú. Mér virtist hv. þm. halda því fram, að ég hefði gefið eitthvað hæpin svör á þinginu í fyrra viðvíkjandi málaferlum einkasölunnar erlendis, og las hv. þm. upp úr þingtíðindunum þessu til stuðnings. Ég sagði þá, að svör mín um þessi málaferli væru eingöngu byggð á upplýsingum frá skilanefndinni. Ef þess vegna hv. þm. vill rengja mín svör þá, vil ég leyfa mér að lesa kafla úr bréfi skilanefndarinnar til ráðuneytisins, dags 5. maí síðastl., sem lýtur að þessu, og getur hv. þm. borið það saman við þingtíðindin:

„Í marz 1931 hafði stjórn einkasölunnar gert samninga við 4 af stærstu síldarkaupmönnum í Svíþjóð um sölu á 13500 tunnum af hreinsaltaðri síld (verð kr. 37,00 fob.), en þegar það varð ljóst, hve mikil veiðin varð og verð á síld fell stórlega af þeim ástæðum, gengu hin sænsku firmu frá kaupunum, eftir að hafa tekið við því, sem fyrst var saltað. Höfðu þeir tekið á móti 3546 tunnum, en neitað að taka á móti eftirstöðvunum, og báru fyrir sig, að þær væru ekki samningshæfar“.

Síðan segir skilanefnd í sama bréfi svo um þær vonir, sem hún gerir sér um árangur af málaferlum við þessa 4 menn:

„Málaflutningsmenn nefndarinnar í Svíþjóð hafa gefið góðar vonir um, að takast muni að fá álitlega fjárfúlgu frá þeim 4 firmum í Svíþjóð, er rofið hafa sölusamningana, en hitt er óvíst, hve háar skaðabætur verða tildæmdar. Krafa nefndarinnar er milli 200 og 300 þús. kr.“.

Ég skil ekki, hvað hv. þm. meinar með þessu, nema svo sé, að hann hafi hér fengið skakkar upplýsingar. Hitt getur hann vitanlega ekki heimtað, að ég vissi nákvæmlega um ásigkomulag síldarinnar eða hvaða skoðanir voru um hana í Svíþjóð. Það er svo algengt, að mál risi út af síld, sem héðan er seld til Svíþjóðar, bæði fyrir og eftir að síldareinkasalan var stofnuð, að hv. þm. getur ekkert sett þessi mál í samband við friðslit milli okkar og viðskiptamannanna þar, og ég vil benda honum á, að það er alls ekki vegurinn til góðs samkomulags og góðra viðskipta við þá að láta alltaf undan í ágreiningsmálum. Það er alkunnugt, að Svíar hafa gengið á það lagið að láta skoðunarmenn sína lýsa því yfir, að íslenzk síld væri ekki verzlunarhæf, þegar svo stóð á, að síld hafði fallið í verði frá því að kaup fóru fram, og þýðir ekkert að mæla á móti því. Ég get því alls ekki að fyrra bragði tekið undir ávítur til skilanefndar fyrir það, þó hún hafi höfðað mál út af síldinni. Hvort nefndin hefir höfðað of mörg mál, skal ég láta ósagt, en mér skilst, að þær upplýsingar, sem hv. þm. Vestm. hefir hér og styðst við, séu aðeins í sambandi við eitt þessara mála. Og þó hér sé nú um eiðsvarinn vitnisburð skoðunarmanna að ræða, þá getur vel verið, að hægt sé að koma með gagnsannanir, er hnekki þeim vottorðum. Þetta veit ég ekki, hvort hér er fyrir hendi, og sennilega veit hv. þm. Vestm. það ekki heldur. Ég held því, að of mikil fljótfærni sé í því að fara að álasa skilanefnd fyrir þessar málshöfðanir, meðan ekki eru meiri upplýsingar fyrir hendi í málinu. — Hvað það snertir, að félagi annars mannsins í skilanefndinni sæki eða verji þau mál á móti einkasölunni, sem þessi maður í skilanefndinni flytur fyrir hönd einkasölunnar, þá get ég sagt, að mér er það ekki persónulega kunnugt. En yfirleitt mun það vera regla, að félagar í málflutningsmannafirma sæki ekki og verji mál hvor gegn öðrum.