08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í D-deild Alþingistíðinda. (1895)
53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands
Guðbrandur Ísberg [óyfirl.]:
Ég hafði ekki hugsað mér að blanda mér í þessar umr., en í tilefni af því, að til mín var vísað í bréfi því, sem hæstv. dómsmrh. las upp, vil ég upplýsa það, að þessi málsmeðferð fór að öllu leyti fram með skaplegum hætti.
Síldarsaltendur á Akureyri töldu sig þurfa að fara í mál við síldareinkasöluna, heill hópur manna. Þegar til þess kom að velja mann til að flytja málin hér í Reykjavík, þá varð fyrir valinu félagi Lárusar Fjeldsteds, Theodór B. Líndal, sem útgerðarmenn á Siglufirði treystu. heim var það ljóst, að hann var félagi Lárusar Fjeldsteds, og má því e. t. v. segja, að þetta hafi verið dálítið óviðkunnanlegt. Líndal átti hér svo að segja eigin hagsmuna að gæta, þar sem hér var m. a. um að ræða kröfu á hendur síldareinkasölunni frá dánarbúi föður hans. Þegar þessa er gætt, þá er það ljóst, að honum var fyllilega treyst til að halda vel á málstað þeirra manna, sem hann flutti málin fyrir, á hendur síldareinkasölunni. Theodór Líndal var síldareinkasölunni ekki hættulegri en það, að málin töpuðust öll, en ég er viss um það, að enginn þeirra manna, sem fólu honum umboð sitt í þessum málum, mun væna hann um að hafa ekki gert eins og í hans valdi stóð. Þessi málafærsla mundi undir venjulegum kringumstæðum vera óviðkunnanleg, en þegar það er athugað, að Líndal hafði hér eigin hagsmuna að gæta, þá er þetta vel forsvaranlegt.