08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í D-deild Alþingistíðinda. (1904)
53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands
Guðbrandur Ísberg [óyfirl.]:
Ég vil leyfa mér að benda hv. þm. Vestm. á, að það var ekki firmað Theodór B. Líndal og Lárus Fjeldsted, sem hefir haft með höndum málflutning í þessum málum, heldur tekur Líndal málin að sér prívat, vegna prívat hagsmuna. Hann fær leyfi Fjeldsteds til þessa, enda er Líndal ekki við nein skipti á þrotabúi síldareinkasölunnar riðinn. Auk þess má benda á, að þessir menn eiga ekki að dæma í málunum. Það er lögmaðurinn í Rvík, sem gerir það, en þeir leggja aðeins fram sín gögn. Ég vil benda hv. þm. Vestm. á það, að í málum eins og þessum, þar sem aðeins er um einföld fjármál að ræða, þá geta jafnvel bræður sótt og varið í sama máli til hins ýtrasta.