27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (1907)

56. mál, endurgreiðsla á skemmtanaskatti

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Það tókst svo illa til um orðalag till., að ég varð að bera fram við hana þá brtt., sem liggur hér fyrir, og bið ég hv. d. að lesa hana inn í málið.

Hv. þdm. eru svo kunnugir öllum málavöxtum viðvíkjandi leikíþrótt og leikfélögum landsins, að ég tel óþarft að fjölyrða um það. Get ég að mestu leyti látið grg. nægja. Mönnum er það yfirleitt ljóst, að fátækum félögum verður örðugt að standa í skilum og halda uppi kostnaðarsömu starfi, sem talsverðar kröfur eru gerðar til, svo framarlega sem starfið á að koma að tilætluðum notum, sem er að glæða menningarhugsun þjóðarinnar með því að veita mönnum göfgandi og menntandi skemmtanir.

Menn getur auðvitað greint á um það, hvort leikfélögum landsins hafi tekizt þetta, eða að hve miklu leyti þeim hafi tekizt það, en um hitt geta vist allir orðið sammála, að þrátt fyrir erfiða aðstöðu, hafa þau gert heiðarlegar tilraunir til þess oft og einatt, og stundum með góðum arangri. Í hópi íslenzkra leikenda hafa menn og konur komið. fram á sjónarsviðið, sem sýndu á sér fullkominn listamannsbrag; sem báru það með sér, að vera gæddir meðfæddum hæfileikum leiklistar. Þeim, sem horft hafa á leiklist slíkra manna, blandast ekki hugur um það, að leikíþróttin ræður yfir áhrifavaldi, sem getur, þegar vel er á haldið, betrað og fegrað hugsunarhátt manna, enda er það sameiginlegt álit allra siðmenntaðra þjóða, og allar styðja þær meira og minna að leikmenntinni og vanda til hennar eftir föngum. Vor eigin þjóð hefir einnig gert þetta. Það þarf ekki annað en að benda á þjóðleikhúsbygginguna hérna til þess að sjá vott þess áhuga, sem borinn hefir verið fyrir þessu málefni. Og þótt segja megi að vísu, að þar hafi menn reist sér hurðarás um öxl hvað kostnað snertir, þá orkar hitt ekki tvímælis, að það eru ekki áhugalausir menn, sem hafa staðið að slíkri framkvæmd.

Ríkis- og bæjarsjóðir hafa og viðurkennt störf leikfélaganna með fjárframlögum. Þetta sýnir, að áhuginn er til og löngun þess að styðja þessa íþrótt með því að hlynna að framtaki þeirra manna, sem bundizt hafa félagsskap til þess að halda uppi leiksýningum fyrir almenning. Að það sé ekki gert í fjáröflunarskyni, sest bezt á því, að íslenzkir leikarar eru allir fátækir menn, sem eingöngu þjóna listinni af áhuga fyrir listinni sjálfri.

Starfsemi leikfélaga er yfirleitt kostnaðarsöm. Hversu smár leikur sem er kostar hér í uppsetningu minnst 2000 kr. Stærri og umfangsmeiri leikrit kosta miklu meira. Allan þennan kostnað, fyrir utan hann kostnað, sem þess utan kemur til greina, verður að leggja á aðgöngumiðana, og verði þeir svo dýrir, að fólkið hiki við að kaupa þá, dregur úr aðsókninni, og þá verður halli á rekstrinum, og þann halla þola félögin ekki til lengdar. Slíkar fjarhagskröggur draga eðlilega úr starfinu og lama áhuga þeirra manna, sem bera hér hita og þunga dagsins. Rekur þá hratt að því, að stórfín leggjast niður að meira eða minna leyti, eða félögin neyðast til þess að afla sér fjar með óvönduðum og miður heppilegum leikritum, sem í sjálfu sér kunna að vera meinlaus, en eru þó um leið gagnslaus til þess, sem fyrst og fremst á að vera takmark sannrar leikmenntar.

Það, sem er farið hér fram á, er að heimila hæstv. ríkisstj. að endurgreiða þeim þrem leikfélögum landsins, er notið hafa opinbers styrks úr ríkissjóði og bæjarsjóðum, skemmtanaskatt þann, er þeim ber að lögum að greiða, — endurgreiða hann um stundarsakir, eða á meðan hann rennur ekki til fyrirhugaðs þjóðleikhúss.

Ég veit, að hv. þm. sjá, að hér er um ekkert stórfé að ræða. Styrkur ríkissjóðs til Leikfél. Rvíkur hefir verið 6000 kr., en hefir í fjárlögum 1934 verið lækkaður í 4000 kr. Skatturinn mun aftur vera áætlaður hjá sama félagi þetta yfirstandandi leikar 3000 kr. Er því raunverulegur styrkur félagsins frá ríkinu einar þúsund krónur. Sami skattur hjá Leikfél. Akureyrar mun láta nærri að verði 400–600 kr., ef sæmilega gengur. Annars hefir illa árað hjá því félagi tvö undanfarin leikár. Það hefir 1000 kr. styrk úr ríkissjóði, gegn 500 kr. styrk úr bæjarsjóði.

Á Ísafirði mun vera líkt ástatt. Þar starfar leikfélag við mjög þröngan húsakost og varð m. a. fyrir því óhappi, er hús það brann, er félagið hafði sýningar í, að missa mikið af áhöldum sínum í brunanum. Til þess að koma sér upp nýjum tækjum varði félagið auðvitað miklu fé. Leikfélag Ísafjarðar nýtur 600 kr. styrks úr ríkissjóði, gegn 300 kr. styrk úr bæjarsjóði. Bæði þessi félög, þótt smá séu, hafa samt sem aður lagt drjúgan skerf til leikmenntar landsins, þar sem úr þeirra hópi hafa komið fram færir leikarar. Dvelur nú t. d. ein leikkona frá Akureyri við konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn.

Ég ætla þá ekki að orðlengja um þetta frekar. Ég veit, að með sanni má segja, að þeir tímar, er vér lifum á, séu örðugir alvörutímar og útheimti annað frekar heldur en leiki og skemmtanir. En er það þó svo mjög mikill óþarfi að stuðla ofurlítið til þess að gefa fólkinu við og við kost á þroskandi og hressandi ánægjustundum? Þjóðverjar segja: „Leikhúsið er eini háskóli almenningsins“. Þar er auðvitað átt við fullkomin leikhús og fullkomna leiklist, en hvers getum ver krafizt af leikfélögum vorum í þeim efnum, ef fjárskortur þrengir eins að þeim framvegis og nú á sér stað.

Ég vona, að hv. þm. verði vel við þessari fjárbeiðni leikfélögunum til handa. — læt ég þá útrætt um þetta að sinni. Ég óska þess, að till. verði vísað til fjárhagsnefndar.