27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í D-deild Alþingistíðinda. (1910)

56. mál, endurgreiðsla á skemmtanaskatti

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Ég skal fúslega viðurkenna, að leikfélögin hafa notið góðs í þessu efni, þar sem þau hafa sloppið léttara en aðrir við þennan skatt. En þess ber að gæta, að þessi félög standa á öðru sviði en venjuleg skemmtifélög, eins og hæstv. fjmrh. tók fram, því að þetta eru félög, sem hafa með höndum menningarstarfsemi fyrir þjóðina. En þótt þau hafi notið þess að sleppa við viðbótarskattinn, þá eru þau illa stödd fjárhagslega eigi að síður og mundi muna afarmikið um það, ef þau gætu líka sloppið við þann skatt, sem þau greiða nú, á meðan skatturinn rennur ekki til þjóðleikhússins. Og af því að þetta er svo mikið smámál og munar svo litlu fjárhagslega fyrir ríkissjóð, þá þykir mér líklegt, að hv. dm. vilji greiða fyrir því.

Ég skil það vel, að hæstv. fjmrh. hlaut að taka svona í strenginn, en hann hlýtur þá að gera það í fleiri málum, því að hér rignir nú niður allskonar tilmælum um aukin útgjöld ríkissjóðs, og þessi till. er eins og krækiber í ámu hjá öllum þeim risavöxnu tillögum.