08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í D-deild Alþingistíðinda. (1913)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Guðbrandur Ísberg [óyfirl.]:

Það voru aðeins fáein orð út af orðum hv. þm. Ísaf. — Það er algengt, að málflutningsmenn taki að sér mál fyrir utan sitt félag, en óalgengt, að svo hittist á, að þeir flytji mál gegn félaga sínum. Annars finnst mér ekki mikil ástæða til að gera mikið veður úr þessu atriði; það er nóg annað í þessu sambandi til að gera veður út af, og hefir líka verið gert.