27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í D-deild Alþingistíðinda. (1914)
56. mál, endurgreiðsla á skemmtanaskatti
Flm. (Guðrún Lárusdóttir):
Hv. 4. landsk. gerði fjármálaástand leikfélagsins að umtalsefni. Virtist mér hann komast þar að þeirri niðurstöðu, að myndaður hafi verið samblástur gegn þeim mæta manni, leikaranum Haraldi Björnssyni. Mér er ekki kunnugt um þann samblástur, en hitt er mér kunnugt um, að myndað var ábyrgðarmannafélag, sem tók að sér stjórn og rekstur félagsins. Formaður var þar Haraldur Björnsson. Gjaldkeri var Ólafur Þorgrímsson, framkvæmdarstjóri Lárus Sigurbjörnsson. Aðrir menn í stjórninni voru þeir Friðfinnur Guðjónsson, Brynjólfur Jóhannesson og Indriði Waage. Skuldir félagsins voru 23 þús., er þeir tóku við því, en þeim tókst að lækka þær niður í 11 þús. Það verður ekki sagt, að Haraldur Björnsson hafi einn velt þessu stóra hlassi, að minnka skuldirnar um meira en helming á þrem árum. Það er gjaldkerinn, sem í þessu félagi eins og öðrum hefir mest með fjárstjórnina að gera, og það mun vera Ólafur Þorgrímsson, sem hér á sinn stóra þátt í, að fjárhagur félagsins batnaði svo mjög á svo tiltölulega stuttum tíma, sem raun ber vitni um.
Ég vil svo halda mér við mína upprunalegu till., að heimila stj. að endurgreiða leikfélögunum þennan skatt.