08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í D-deild Alþingistíðinda. (1915)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Hæstv. ráðh. helt því fram, að ef Austfirðingar fengju greiddar þessar víxilskuldir, þá væri í raun og veru síldareinkasalan orðin ábyrg fyrir öðrum lánardrottnum. Ég vil í þessu sambandi rifja upp það, sem greinilega var tekið fram um þetta áður hér á þingi, og auk þess það, sem stóð í grg. frv. um greiðslu þessara víxla á síðasta þingi. Það var svo ástatt á Austurlandi, að viðskiptamenn síldareinkasölunnar fengu engin verkunarlaun, en lögðu til salt og tunnur, en annarsstaðar lagði einkasalan til salt og tunnur og greiddi verkunarlaun og 2 kr. á hverja tunnu hrásíldar, en á Austfjörðum ekkert. Þetta á því á engan hátt skylt við aðrar kröfur í bú síldareinkasölunnar.

Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að stj. hefir hér enga heimild til að greiða neitt úr ríkissjóði eða gera ráðstafanir til, að þessar skuldir verði greiddar sem forgangskröfur, án þess að þingið leggi eitthvað til í þessu efni, en í þál. í fyrra var ætlazt til, að stj. útvegaði bráðabirgðafrest á greiðslu þessara skulda, svo að stj. gæti athugað málið og lagt fyrir næsta þing till. til úrlausnar. Og ég vil mega vænta, að stj. geri þetta, kynni sér til hlítar, ef hún hefir ekki gert það enn, sem ég efast um, eftir ræðu hæstv. ráðh., hvernig þessar skuldir eru til orðnar, og leggi till. sínar fyrir næsta þing. Það er alveg víst, að þessar skuldir eru sérstaks eðlis og ólíkar öllum öðrum kröfum í bú síldareinkasölunnar.

Ég skal ekki lengja mikið umr. um kostnaðinn, en það er þó víst, að hann nemur tugum þúsunda, eins og hv. þm.

A.-Húnv. mundi orða það. En ef á að bera saman þá ágalla, sem orðið hafa á rekstri síldareinkasölunnar og þeim marglofaða einstaklingsrekstri, verður þar ekki þyngri baggi þess opinbera, heldur verður hinn margfalt þyngri og stærri.