08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í D-deild Alþingistíðinda. (1918)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Það er aths. út af aths. Það er alveg rétt, að einkasalan átti ekki að tapa, þegar hún var stofnuð, og hún átti ekki að greiða viðskiptamönnum sínum meira en hún gat, en ég veit ekki betur en að þessi hv. þm. og sjálfstæðismenn yfirleitt haldi því fram, að slíkt hið sama eigi að eiga sér stað um einkafyrirtæki, að þau greiði ekki meira fyrir vöruna en hægt er að fá fyrir hana, en kosturinn sé sá, að af því að töpin skelli á mönnunum sjálfum, þá séu þeir praktískari, samvizkusamari og ráðvandari o. s. frv. o. s. frv., og þá verði skakkaföllin minni, en reynslan hefir bara sýnt allt annað.