05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í D-deild Alþingistíðinda. (1921)
56. mál, endurgreiðsla á skemmtanaskatti
Guðrún Lárusdóttir:
Ég get verið hv. fjhn. þakklát fyrir hennar vinsamlegu undirtektir við þessa þáltill., því ég vonast til, að fyrirvarinn fyrir undirskrift hv. 2. landsk. þýði ekki það, að hann vilji á nokkurn hátt bregða fæti fyrir þetta smámál.
Ég hefi hér leyft mér að bera fram ofurlitla brtt. fyrir tilmæli leikfélagsins í Vestmannaeyjum. nm að það félag megi einnig verða aðnjótandi þeirrar ívilnunar, sem hér er um að ræða. Þar eru sömu ástæður fyrir hendi og hjá hinum leikfélögunum, fátækt og féleysi annarsvegar, en hinsvegar viðleitni til að halda uppi ofurlítilli leiklist. Bæjarsjóður Vestmannaeyja hefir styrkt þetta félag eitthvað, og er það þó ofurlítil viðurkenning á starfi þess. Ég vil því mælast til þess, að hv. d. sjái sér fært að samþ. einnig þessa brtt.
Ég hafði búizt við, að hv. 4. landsk. mundi gera grein fyrir brtt. sinni áður en ég tæki til máls, en hann var þá ekki staddur í d. og hæstv. forseti lýsti yfir, að umr. væri lokið, svo ég þorði ekki annað en kveðja mér hljóðs, svo að umr. féllu ekki niður, til þess að gera aths. við þessa brtt. hv. I. landsk. Um hana er það í stuttu máli að segja, að hún fer fram á að stofna nýtt embætti í sambandi við leikstarfsemina hér í bæ. Ég get ekki séð, að leikfélagið hafi frekar skyldum að gegna gagnvart þeim manni, sem á að stofna þetta embætti fyrir, heldur en öðrum félögum sínum, sem árum saman hafa starfað þar vel og dyggilega. Er mjög varhugavert, ef Alþ. fer að hlaða undir einstaka menn innan félagsskaparins, og ég held, að það gæti dregið óþægilegan dilk á eftir sér. Alþ. hefir nú þegar veitt sérstakri konu úr þessu félagi sérstakan styrk til leiksýninga. Ef svona er haldið áfram, getur það leitt til þess, að ýmsir fleiri úr leikfélaginu, sem stafað hafa vel og lengi fyrir leiklistina, fari að leita eftir því að þingið velti þeim þannig sérstök laun eða krefjist þess, að leikfélagið fari fram á aukinn styrk handa þeim.
Það hafa þegar að undanförnu legið talsverðar kvaðir á Leikfélagi Rvíkur. T. d. kvöðin um alþýðusýningar. Sem var skilyrði fyrir styrknum frá bæjarfélaginu. Þeirri kvöð var þó létt af þegar bærinn lækkaði styrkinn um helming, úr 6 þús. kr. niður í 3 þús. kr. Ríkissjóðsstyrknum, sem félagið nýtur á þessu ári, fylgir sú kvöð frá nýári, að menntamálaráðið á að leggja dóm á þau leikrit, sem leikin verða, eða vera einskonar kritiskur endurskoðandi á leikfélaginu. Og ef þessi brtt. hv. 4. landsk. á að þýða það, að vissum manni, sem hann tilgreinir, sé falið á hendur að kritisera leikritin eða segja til um þau, þá finnst mér, að ákvæðið um menntamálaráðseftirlitið fari að verða nokkuð óþarft, eða a. m. k. annað af tvennu megi missa sig. Ég sé enga ástæðu til að vera að setja mann til höfuðs menntamálaráðinu; ég held, að eftirlit þess ætti að vera nægileg trygging fyrir, að leikfélagið vandi sig og taki ekki til sýningar nema góð leikrit. Eigi það hinsvegar að vera hlutverk þessa manns eins og till. bendir einnig til, að líta eftir fjárhagslegum rekstri félagsins, þá finnst mér það einnig með öllu óþarft, þegar þess er gætt, að viðurkenndir endurskoðendur hafa verið látnir endurskoða reikninga félagsins og munu verða látnir gera það eins framvegis.
Þá virðist mér einnig einkennilegt að binda þessa brtt. einungis við Leikfélag Rvíkur, að gera það að skilyrði, að þar sé settur sérstakur maður á laun til eftirlits, auk hinna löggiltu endurskoðenda. eða einskonar rekstrarstjóri við hlið framkvæmdarstjórnarinnar, auk íhlutunar menntamálaráðsins, sem ég hlýt að leggja mesta áherzlu á.
Ennfremur er það að athuga, að í brtt. kemur ekkert fram um, hvað há laun er ætlað að greiða þessum manni fyrir þetta tvíþætta starf. Og þar sem engin slík staða mun vera til sér launuð, hvorki við leikstarfsemi hér eða annarsstaðar, og þess vegna ekkert til samanburðar í þessu efni, þá verður varla hjá því komizt að áætla launaupphæðina með hliðsjón af þeim launum, sem þessum manni hafa verið greidd af leikfélaginu til þessa, bæði sem leikanda og forustumanni. Fyrir þremur árum höfðu leikendurnir í hæsta lagi 25 kr. fyrir leikkvöldið, og fyrir leiðbeiningu voru einnig greiddar 25 kr. þegar Haraldur Björnsson tók við stjórn leikfélagsins og gerðist aðalleiðbeinandi þess, þá var kaupið hækkað eftir hans eigin kröfu upp í 75 kr. á leikkvöld. þ. e. 50 kr. fyrir leiðbeininguna og 25 kr. fyrir að leika. Og jafnvel þetta kaup, sem sýnist þó vera nokkuð hátt, var ennþá hækkað, sömuleiðis eftir hans eigin kröfum, því hann vildi einnig fá laun fyrir að vera formaður félagsins, en fyrir það hafði enginn fengið laun áður. Með þessu móti hefði kaupið komizt upp í 90 kr. á leikkvöldi. Þar sem svona reynsla er fengin af launakröfum þessa manns, þá er ástæða til að ætla, að það yrði ekkert smáræði, sem hann vildi hafa fyrir þetta tvöfalda starf, sem hér er ráðgert, og má búast við, að það yrði leikfélaginu um megn að standa straum af því; í öllu falli yrði leikfélaginu þá ekki kleift að fara þá leið, sem það hefir ætlað sér, að lækka til muna verð á aðgöngumiðum, til þess að almenningi gefist frekar kostur á að njóta þess, sem þar er boðið fram. Og á það verður að leggja áherzlu, svo framarlega sem maður vill stuðla að því að leiklistin geti notið sín í landinu.
Ég tel með öllu óhæfilegt að samþ. slíka brtt., bæði frá því sjónarmiði, sem ég hefi nú bent á, og eins af því, að ég tel ófært, að Alþingi fari að hlutast til um það, hvernig „privat“ félög, þó þau njóti framlags úr ríkissjóði, hagi sínum innanhússtörfum. Ég vonast því fastlega til, að hv. dm. sjái sér fært að fella þessa till., en hinsvegar sjái sér fært að stuðla að viðgangi félagsins með því að gefa stj. þessa heimild, sem farið er fram á með þáltill.