15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (1936)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Ólafur Thors:

Ég skal játa, að það kunni að vera eitthvað satt í því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að ég væri stundum fremur ógætinn í orði. En ég get bætt því við, ef á annað borð er út í það farið, að ég veit ekki nema ég gæti fundið eitthvað svipað skapsmunum hans sjálfs, ef mannjöfnuður væri gerður okkar á milli í þeim efnum. Þó ætla ég nú að sýna honum þá skapstillingu í rétta sinn að bíða með að nefna nokkur dæmi því til sönnunar í fari hans sjálfs, þangað til við erum einir til viðræðu.

En út af þeirri sögu, sem um hefir verið getið, að ég hafi grátbænt leynivínsala að svala áfengisþorsta mínum, þá vil ég segja eins og er, hvað þar muni vera lagt til grundvallar. Á fundi, sem haldinn var hér í stúdentafélaginu 1931 um bannlögin, þar sem þau voru rædd sem einkamál í hópi stúdentabræðra, sem hvorki var ætlazt til, að skýrt yrði frá í sölum Alþingið né í útvarpinu, flutti ég ræðu, þar sem ég vek að meðferðinni á þeim mönnum, sem harðast höfðu orðið fyrir barðinu á sektarákvæðum bannlaganna. Framarlega í fundarsalnum sat einn af þessum mönnum, Jóhannes Jósefsson gestgjafi á Borg, sem þá var undir ákæru fyrir bannlagabrot. Ég mun þá hafa sagt eitthvað á þessa leið: Hér situr nú meðal vor einn af þessum glæpamönnum. Glæpur hans er nú í því fólginn, að hann hefir verið of undanlátssamur gagnvart áleitni manna úr öllum stjórnmálaflokkum um ólöglegar vínveitingar. En ef hann nú þarf að fara í tugthúsið fyrir þessar sakir, þá má það þó vera honum nokkur sárabót, að hann getur haft Jónas Jónsson undir annari hendinni og mig undir hinni sem samseka í þessu máli.

Það hefir þráfalt komið fyrir í þingveizlum, að veitt hefir verið vín eftir að löglegur vínveitingatími var liðinn. Þar sem þetta er á allra vitorði, þá verð ég að telja það óviðurkvæmilegt að bera fram þá slúðursögu í útvarpsumr. eftir að ég átti þess engan kost að bera hönd fyrir höfuð mér, að ég hefði með gráti og gnístran tanna beðið leynivínsla að svala áfengisþorsta mínum. Ég hygg, að ég hafi því eigi ofmælt í fyrri ræðu minni, er ég kallaði þennan sögumann siðlausan dóna.

Nú hefir mér verið sagt, að stórtemplar sé prúðmenni. (FJ: Já, hann er það). Má vera, að svo sé, en hann er þá lítilmenni. Sjálfur þekki ég hann ekki, en þegar ég heyrði þetta, þá sagði ég: Þessi maður kann að vera prúðmenni, og ekki dóni nema þegar hann þarf þess.

Ég hygg, að ég hafi þá leiðrétt það, sem fram hefir komið hér í þessum umr. En í tilefni af umvöndun hv. 1. þm. Reykv. út af orðbragði mínu skal ég lesa yfir honum á eftir allar bænirnar og trúarjátninguna með.