15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (1937)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Héðinn Valdimarsson:

Mér finnst það ekki frambærileg ástæða gegn þessari þáltill., þó að einn þdm. hafi orðið fyrir persónulegri móðgun frá einhverjum forráðamanni góðtemplarareglunnar. Ég vil því ekki taka undir neitt af því, sem hv. þm. G.-K. hefir sagt um þetta mál.

Mér skilst, að hið raunverulega verð eignarinnar muni vera einhversstaðar á milli 50 og 75 þús. kr. Dómur hefir gengið í máli út af lóðinni milli góðtemplarareglunnar og Alþingis. Þar var dæmt, að góðtemplarareglan ætti helminginn af lóðinni, en hún var skyldug að flytja af henni, en þó átti ríkissjóður að útvega aðra lóð í staðinn.

Lóðin er að fasteignamati 23 þús. kr., og sé lagt þar við sem svarar 50% af þeirri upphæð, eins og lóðin mundi verða hærri að söluverði, þá verður það um 34–35 þús. kr. Auk þess átti ríkissjóður að borga þann kostnað, sem leiddi af flutningi hússins af Staðnum. Það mundi verða um 15–16 þús. kr., svo það er víst, að skuldbindingar ríkssjóðs eru ekki nema um 40–50 þús. kr., og það gengur ósvífni næst að ætla sér að láta ríkissjóð greiða 200 þús. kr. fyrir þetta. Það liggur því ljóst fyrir, að það, sem meint er með þessari till., er ekkert annað en 150 þús. styrkur til bindindisstarfseminnar. Nú mundi ég vera með því, að ríkissjóður keypti þessa lóð fyrir matsverð, en með húsið hefir hann í raun og veru ekkert að gera, en það geta verið skiptar skoðanir um, hvort ætti að taka það með eða ekki. En hinsvegar finnst mér eðlilegt, sérstaklega ef sterkir drykkir verða leyfðir í landinu, að það verði að veita ríflegan styrk til bindindisstarfsemi í landinu, og þá ekki einungis til góðtemplarareglunnar, heldur gengju ekki litlar upphæðir til skóla og hverskonar bindindisstarfsemi, sem er fyrir utan regluna, svo og til kennara og annara, sem gætu haft áhrif á þau mál í landinu. En till. verður a. m. k. að bera með sér , að hér sé ekki eingöngu um eignakaup að ræða, heldur líka styrk.

Þetta mál mun koma fyrir fjvn., svo ekki er þörf á að fara lengra út í það að sinni, en ef ekki verða gerðar breyt. á því, mun ég gera það frekar. En að samþ. það óbreytt, finnst mér ekki geta komið til mála.