15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (1942)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Jakob Möller:

Ég vil aðeins vekja athygli hv. þm. G.-K. á því, að það er gömul, viðurkennd réttarfarsregla að heyra framburð beggja málsaðilja. Nú krefst hv. þm. þess, að Alþingi dæmi hinn málsaðilann eftir sinni málafærslu sem sækjanda málsins, án þess að heyra hinn málsaðilann.

Ég er sannfærður um, að hv. þm. G.K. hefir ekki athugað, hvað hann var að fara fram á. Í þessu sambandi vil ég vekja athygli hv. þm. á því, hve mikill styrkur honum hefði verið við flutning þessarar kröfu, ef hann hefði getað vísað í dóm, þar sem yfirmaður reglunnar á Íslandi hefði verið dæmdur fyrir ósæmileg og staðlaus ummæli um þann hv. þm. En hann var svo óheppinn, að hann gætti þess ekki að hafa þessi gögn í höndunum, og ætlast nú til, að Alþingi dæmi þennan mann an þess að heyra hans framburð. Ég mótmæli þessu harðlega.