15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (1943)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Hv. þm. Str. sagði, að sér þætti miklu miður, að umr. hefðu snúizt inn á þetta svið, sem raun hefir á orðið. Það skal mig ekki undra, þó að hv. flm. þyki það miklu miður, að umr. skuli hafa snúizt um efni og tilgang sjálfrar till. þeirrar, sem fyrir liggur!
Hv. 2. þm. Reykv. benti á, að sér þætti það nokkuð einkennilegt að kaupa þessa eign með margföldu verði, og benti á, að það mætti alveg eins hafa aðra aðferð, ef ætti að styrkja regluna, og sé leið finnst mér skemmtilegri og eðlilegri heldur en að stilla upp kaupum og sölu á verðmæti, sem ekki kemst í námunda við þess raunverulega verðmæti.
Út af þeim deilum, sem orðið hafa um það, hvort forsvaranlegt sé að fá leiðandi mönnum reglunnar svo mikið fé í hendur til þess að starfa með að þessum málum í landinu, vil ég segja það, að ég hallast að skoðun hv. þm. G.-K. í því efni, ekki fyrir það, að ég hafi orðið fyrir svipaðri árás og hann, sem sjálfsagt stafar af því, að ég hefi ekki gefið neitt tilefni til þess og verið mjög gætinn í öllum umsögnum um templara og það máefni.
En það getur verið, að hann sé eitthvað sekur í því efni, samanber orðatiltækin: „fullur í gær, fullur í dag og fullur á morgun líka“. En það vil ég taka fram, að þau orð gefa ekkert tilefni til þess að ætla, að hann hafi með þessu háttalagi brotið áfengislöggjöfina. Hann hefir getað verið ölvaður og fylgt öllum ströngustu kröfum áfengislaganna. Ég vil benda á, að það er ekki þýðingarlaust fyrir bindindisstarfsemina, að sú starfsemi, sem reglan rekur, sé fengin í hendur þeirra manna, sem einhver áhrif hafa meðal þjóðarinnar, og einnig hvort starfsaðferð þeirra er sigurvænleg, en ég hefi enga trú á þeirri starfsaðferð, sem leiðandi menn reglunnar hafa nú.
Ég var á fundi fyrir norðan skömmu áður en ég fór suður og heyrði á einn umferðapredikara stúkunnar, fór hann þeim orðum um einn þekktan mann í okkar þjóðfélagi, að allir fyriryrðu sig fyrir hann. Nú var það svo um þennan mann, að hann hafði tiltrú fjölda manna og hafði unnið talsvert að málum bindindismanna, en framkoma hans þarna var óskapleg, og þær svívirðingar, sem hann flutti, voru svo róttækar, að mér dettur ekki í hug að flytja þær hér. Þó að margt sé sagt hér í þingsalnum, kemst það ekki í hálfkvisti við þær svívirðingar, sem þessi maður flutti í dulbúnu máli, þó á þann hátt, að öllum gat skilizt, við hvern hann átti, en hann hafði ekki manndóm í sér til þess að nefna neitt nafn. Eftir þennan fræga fyrirlestur átti hann að vinna að því að endurreisa stúku þarna á staðnum, sem ekki hafði starfað um skeið, af því að hún hafði ekkert verkefni að vinna. En þeir menn, sem þarna voru á staðnum og eru bindindismenn af lífi og sál, fengu svo mikla andstyggð á framkomu þessa manns, að þeir neituðu að taka nokkurn þátt í starfsemi hans. Hann fékk ekki einn einasta mann með sér, svo rótgróin var fyrirlitningin á því, hvernig hann hagaði sinni starfsemi á þessum stað. Hvernig getum við svo hugsað okkur að kasta 150 þús. kr. til þessara manna, sem hrinda frá sér samstarfsmönnum aneð svívirðilegum ummælum um einstaka menn? Það getur náttúrlega verið gott að forða því, að menn drekki sig fulla af áfengi, en ég veit ekki, hvort það fyllirí er verra en þegar þessir ofstækismenn eru ár eftir ár á „rúngandi fylliríi“ í ofstæki sinnar eigin skoðunar. Þeir hafa timburmenn, sem stafa af ofnautn á þessu ofstækishjali þeirra. Ég held, að það sé ennþá verra, og þeir gera það illmögulegt fyrir þá menn, sem vilja vinna að þessum málum, að orka nokkurs, því að þeir koma eins og úlfar í hjörðina og eyðileggja alla starfsviðleitni manna. Mér finnst því fyllsta ástæða til þess að athuga, hvort það er forsvaranlegt að fá þessum mönnum fé í hendur til þess að útbreiða svívirðingar um einstaka ágæta menn þjóðarinnar og hrinda frá starfi mönnum, sem vilja vinna að því að minnka ofdrykkjuna í landinu, hvort sem það er af því, að þeir hafi verið svo sinnaðir frá upphafi, eða það eru menn, sem hefir þótt sopinn góður, en hafa svo áttað sig, eins og sumir hv. þingbræður mínir, sem sitja kannske ekki allfjarri mér, og tekið upp aðra stefnu í þessum málum. Það er virðingarvert, að þeir hafa séð að sér, en þeir eiga þá að gæta hófs í ummælum sínum um aðra menn.
Það er verið að ásaka hv. þm. G.-K. fyrir það, að hann hafi verið of örorður í garð manna, sem ekki voru hér viðstaddir, en mér fannst hann færa rök fyrir því, að þau orð féllu hjá honum. En ég varð því miður var við það hjá hv. 1. þm. Reykv., að hann kom með engu vægari áras á mann, sem ég veit ekki til, að hafi komið neitt opinberlega fram í þessu máli, og þurfi því ekki að kasta steini að honum.
Ég lýsi því yfir, að ég mun ekki fylgja þessari þáltill., vegna þess, að ég álít það ekki forsvaranlega aðferð að kaupa fasteignir með margföldu verði, og ef á að fara að veita stórstúkunni lífeyri í framtíðinni, verður það að vera gert með sérstöku tilliti til þess, að hún velji ekki þá menn til starfa, sem þjóðin getur ekki treyst, að ekki misbeiti svo stöðu sinni, að til tjóns verði fyrir það málefni, sem þeir eiga að vinna fyrir. — Ég mun svo láta þetta nægja frá minni hálfu og greiði atkv. á móti þessari þáltill. — og það strax, því að ég kæri mig ekkert um að hún sé að veltast lengur fyrir þinginu.