15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í D-deild Alþingistíðinda. (1945)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Gísli Sveinsson [óyfirl.]:

Mér finnst það vera við hæfi, að umr. um þessa þáltill. verði nokkurskonar forsöngur að atrennu þeirri, sem gerð verður á þessu þingi til þess að nema úr gildi bannlögin, sem svo mjög hefir verið þráttað um á síðari árum. Hv. flm. hafa vitnað í núv. ástand og skorað á þingið að létta undir með góðtemplurum við húsbyggingu þeirra. Ég geri ráð fyrir því, að góðtemplarareglan almennt geri sér það ljóst, eins og hv. aðalflm. tók fram, að nú væru straumhvörf með þjóð vorri á þessum málum. Rökrétt afleiðing afnáms bannsins er sú, að reglan taki upp sína fyrri baráttu, byrji að nýju, því það, sem náðst hefir — bannið —, er farið forgörðum, og því verður nú að fitja upp á nýju.

Að vísu á Alþ. eftir að samþ. afnám bannlaganna, en það er aðeins formsatriði, enda heyrist mér nú allir hv. þm. vera sammála um það, að þá leið beri að fara. Það má samt segja, að þessi till. sé komin of snemma fram, hefði gjarnan mátt bíða þar til búið var að koma aðalmálinu í það horf, sem sjálfsagt er. En vonandi fylgir hugur máli hjá forsvarsmönnum bannvina hér á Alþ., og þeir beygi sig fyrir þjóðarviljanum, þegar til kastanna kemur með afnám bannsins. Auðvitað getur Alþ. ekki tekið aðra afstöðu en þá, að fylgja meiri hl. þjóðarinnar, enda var svo mikill meiri hl. með afnámi bannsins, að það hlýtur að verða numið úr gildi. En síðar mun verða tækifæri til þess að ræða það nánar.

Þegar þessi straumhvörf eru að gerast, þá er eðlilegt, að templarar hugsi sig um og vilji vita fótum sínum forráð, en það hafa þeir ekki vitað árin að undanförnu. Sem dæmi upp á það vilja þeir nú fara að reisa hús. Það er symbolskt, því að það þarf ekki einungis að reisa nýtt hús, heldur líka nýja reglu og nýtt starf. Gamla byggingin er að falli komin, unnið starf reglunnar einnig. Bygging íslenzkra templara er hrunin til grunna, og þeir hafa sjálfir staðið að niðurrifinu. Nú vilja þeir reisa þessa byggingu sína að nýju, en til þess þurfa þeir aðstoð ríkissjóðs. Þeir hafa alltaf fengið fjárstyrk úr ríkissjóði, og þeir hafa ekki notað það fé réttilega meðan bannið hefir staðið. Þeir hafa ekki notað feð til þess að veita almenningi haldgóða bindindisfræðslu, heldur stöðugt hamrað á þessu banni sínu. Og sýnilega hafa ýmsir hv. þm. legið undir þeirri ýtni bannmanna, að þeir skyldu setja slíkan blett á löggjöfina sem áfengislögin eru.

Það er von, að þeir, sem hafa hvað eftir annað verið svívirtir í orðum af forvígismönnum þessa félagsskapar, minnist á það nú. En ég álít ekki rétt að taka afstöðu til þessarar till. á þeim grundvelli. Reynslan hefir sýnt, bæði á þessu sviði og öðrum, að varlegra er að fyrirskipa ekki, að mennirnir séu svo og svo góðir. Þó að menn séu góðir í dag, geta þeir verið orðnir allt öðruvísi á morgun. T. d. sagði einhver áðan af fullri sannfæringu, að stórtemplar væri prúðmenni.

Hv. þm. G.-K. játar þessu, en sýnir jafnframt fram á það, hvernig þessi maður vann sér til óhelgi við eitt einasta tækifæri.

Ég tel fullkomlega eðlilegt, að templarar fari fram á styrk af opinberu fé, en ég álít þá aðferð óhæfa, að ætla að nota þetta lóðamál til þess að knýja fram stóreflis styrki. Styrkurinn gæti komið fram á annan hátt, og ég tel jafnvel sæmilegt, að nú, þegar reglan ætlar aftur að fara að starfa á ærlegum grundvelli, fái hún styrk til þess að koma sér upp húsi. En lóðamálið er allt annað mál. Það hefir flækzt fyrir Alþ. um langt skeið og er ekkert annað en einber hégómi. Það er hreinasti misskilningur, að Alþ. hafi nokkurra hagsmuna að gæta í sambandi við þessa lóð. Þegar hér verður reist stærra og veglegra þinghús, verður það ekki á þessum stað. Templaralóðin getur því verið frjáls hverjum sem er þess vegna. Þetta hús er tilvalið sem þjóðmenjasafn þegar fram líða stundir, en nýtt þinghús á að vera á öðrum stað. Bezta lausn þessa máls teldi ég þá, að Alþ. afsalaði sér öllu tilkalli til þessarar lóðar og afhenti templurum hana kvaðalaust. Ég vil að lokum leggja það til, að máli þessu verði ekki strax vísað til síðari umr., heldur verði umr. nú frestað og málinu vísað til n.