15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (1946)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið nú að sinni. En ég vildi samt minnast á þá áskorun hv. þm. G.-K. til þm., að þeir tækju upp þykkjuna fyrir hann og settu þessari fjárveitingu einhver sérstök skilyrði. Hann hefir hegðað sér hér í d. sem vanstilltur píslarvottur, barmar sér yfir því, að um sig sé ómaklega farið hinum hörðustu orðum, og lætur það skína í gegn, að sjálfur sé hann prúðmennskan uppmáluð. Ég vil nú leyfa mér að draga þá prúðmennsku í efa, og máli mínu til sönnunar benda á ræðu hv. þm. G.-K., sem hann flutti um áfengisl. á síðastl. Alþingi. Þar segir hann svo um þá menn, sem veita reglunni forstöðu:
„Ég er hræddur um, að menn fái óbeit á slíku máli, af því að þeir eru ógeðslegir, sem standa í fararbroddi“.
Þetta er nú svo sem sýnishorn af prúðmennskunni, og auk þess er puntað upp á ræðuna með orðum eins og „dónar“ og „dusilmenni“, þegar um andstæðingana er að ræða. Ennfremur segir í sömu ræðu, að áfengi sé sá notalegasti drykkur, sem geti komið inn fyrir varir þyrsts manns! — En það, sem ég vildi sagt hafa með þessu, er það, að sá, sem velur andstæðingum sínum slík orð á vettvangi, þar sem þeir hafa ekkert tækifæri til þess að bera hönd fyrir höfuð sér, ætti helzt ekki að kveinka sér undan hörðum orðum frá þessum sömu andstæðingum, og það því síður, ef þau eiga fullan rétt á sér, eins og samflokksmaður hv. þm., hv. 1. þm. Reykv., upplýsti.
Hv. þm. bar það, að hann hefði verið algerlega varnarlaus fyrir orðum stórtemplars. Ég vil þó benda á, að næst á eftir stórtemplar talaði samsinnismaður þessa hv. þm., Einar E. Kvaran.
Þá vil ég hvað mig snertir mótmæla sem algerlega tilhæfulausum orðum hv. hm. um framkomu þm. í þingveizlum. Hann var að lýsa því, að þegar löglegur vínveitingatími væri útrunninn, kæmi upp hjá þm. grátur og gnístran tanna, og heitar bænir stigi frá brjóstum þeirra til veitingamannsins um það, að halda áfram að veita vín. Ég veit með vissu, að það er mjög fjarri sanni að yfirfæra þetta á þm. almennt, þótt þessa kunni að vera dæmi.
Skilyrði þau, sem hv. þm. vill setja fyrir fjárstyrk til reglunnar, skildist mér vera þau, að þessir „dónar“, sem hann nefnir svo, væru látnir víkja sæti úr trúnaðarstöðum reglunnar, og í stað þeirra settir menn, er væru honum meir að skapi. Ég veit, að góðtemplarareglan gengur aldrei að því skilyrði að játa hv. þm. G.-K. segja sér fyrir um embættismenn sína, enda yrði þá varla von neins góðs starfs af hennar hendi.
Það er rétt hjá hv. 2. þm. Reykv., að sú upphæð, sem hér er nefnd, er allt of há sem kaupverð lóðarinnar. En ég lít svo á, sem þetta sé eins mikið beinn byggingarstyrkur til reglunnar, og fannst mér hv. aðalflm. enga dul draga á það. Og ég tel afgreiðslu þessa máls prófstein á þann bindindisáhuga, sem ýmsir andbanningar kjósa að skreyta sig með. En ég er undir niðri alveg vantrúaður á bindindisskraf þessara manna, sem vilja endilega styrkja bindindisstarfsemi í öðru orðinu, en segja svo í hinu, að áfengi sé sá notalegasti drykkur, sem fari inn fyrir varir þyrsts manns. Og ég hefi litla trú á löghollustu þeirra manna, sem hrósa sér af því að geta náð í eins mikið whisky og þeir bara kæri sig um, hvenær sem er. — Mér þótti leitt, að hv. þm. Mýr. og hv. hm. V.-Húnv. skyldu finna sig knúða til að standa upp og vitna, að þeir gætu tekið undir allt ráð, sem hv. þm. G.-K. hefði sagt. frá eigin brjósti bættu þessir hv. þm. við bindindisahuganum og brennivínsaðdáun.
Ég get svo látið niður falla umr. um þessa till. að sinni og mun greiða atkv. með því, að hún fari til síðari umr. og í nefnd.