28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í D-deild Alþingistíðinda. (1961)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Jakob Möller:

Það var aðallega út af ummælum hæstv. forsrh., að ég kvaddi mér hljóðs. Hann virtist setja þetta mál á einhvern hátt í samband við það, að stórstúkan hefir skorað á Alþingi, að ekki verði gerðar breyt. á núgildandi áfengislöggjöf á þessu þingi. Þetta sagðist hann skilja svo, að stórstúkan ætlaðist til þess, að þetta mál yrði heldur ekki afgr. á þessu þingi. Mér var ekki ljóst, í hverju hæstv. ráðh. taldi, að þetta samband fælist. Á síðasta þingi voru menn skipaðir til þess að semja um þetta mál, og var það þá ekki á nokkurn hátt sett í samband við áfengismálim, og ég get ekki heldur séð, að það sé hægt, nema hæstv. forsrh. hafi hugsað sér að hafa um þetta einskonar verzlunarviðskipti við góðtemplara, þannig, að ef þeir eru góðu börnin og þegja við því, hvernig fara á með bannið, þá geti þeir haft von um styrk úr ríkissjóði. Ég skal geta þess, að ég á sæti í framkvæmdarnefnd stórstúkunnar, en greiddi þó atkv. á móti því, að þessi áskorun yrði send. Þar fyrir held ég því fram, að ályktun hæstv. ráðh. sé með öllu óviðeigandi. Þó að ég hafi ekki verið sammála samnm. mínum um áskorunina, þá finnst mér það virðingarvert af félagsskap, að hann heldur fast við stefnuskrá sína, án tillits til þess, hve mikið hann á undir hinum aðilanum komið. Mér finnst það afaróviðfelldið og illa viðeigandi, að Alþingi sé að sveifla þessu bitra sverði yfir höfði þessa viðurkennda félagsskapar, þegar hann er að starfi sínu og að uppfylla stefnuskrá sína. Um áfengismáið eru hinsvegar skiptar skoðanir, eins og ég hefi áður tekið fram; jafnvel innan framkvæmdanefndar stórstúkunnar eru menn ekki sammála um, hvaða leið skuli farin. En eins og nú stendur á, mótmæli ég algerlega, að Alþingi eða ríkisstj. misnoti aðstöðu sína gagnvart templurum til þess að þvinga þá á nokkurn hátt, þó að þeir láti í ljós skoðanir sínar á þessum málum, sem þeir hafa alla tíð barizt fyrir. Hv. þm. Str. lagði orð hæstv. ráðh. út á betri veg en ástæða var til, þar sem hann lagði þann skilning í orð hæstv. ráðh., að ekki væri fé fyrir hendi, sem verja mætti í þessum tilgangi, nema jafnframt væri gerð breyt. á áfengislögunum. En ég held, að erfitt reynist að skýra þessi ummæli á slíkan hátt, einmitt í sambandi við forsögu málsins. Þegar samningaumleitanir foru fram milli þinga, var þetta atriði aldrei nefnt í sambandi við málið. Ég verð að líta svo á, að sé þetta sú ógnarfjárhæð fyrir ríkið, þá hefði verið sjálfsagt að nefna þetta sem tekjulindina, er öllu ætti að bjarga. Nei, ég tel það mjög æskilegt og rétt, að hæstv. forsrh. beri af sér þann grun, sem orð hans hafa vakið, að hér standi til, að templarareglan sé þvinguð til þess að láta af kröfum sínum og bregðast stefnu sinni, með því að setja það sem skilyrði fyrir því, að henni verði veittur styrkur af Alþingi til starfsemi sinnar.