28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í D-deild Alþingistíðinda. (1962)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Hv. 1. þm. Reykv. segir, að sér sé ekki ljóst sambandið á milli þessarar till. og áfengislöggjafarinnar, og á þá við hrein kaup á lóð og húsum góðtemplarareglunnar. En þetta hefi ég ekki sett í neitt samband hvað við annað, enda hefi ég mælt með brtt. minni hl. n., sem leggur til, að þjóðin sé keypt eftir mati dómkvaddra manna. Milli þeirra kaupa og áfengislöggjafarinnar hefi ég ekkert samband sett. En hitt er annað mál, að ef hv. þm. ætlast til, að reglunni sé veittur 100 þús. kr. styrkur um leið og keypt sé af henni lóð og hús, þá hlýtur eitthvert samband að vera á milli þess og væntanlegra breytinga á áfengislöggjöfinni. Undanfarin ár hefir góðtemplarareglunni verið veittur þetta 8–10 eða 12 þús. kr. styrkur, og hefir mikið verið um það fjasað, hvort sá styrkur skyldi vera 2 þús. kr. meiri eða minni. Hvers vegna á þá nú allt í einu að fara að styrkja regluna með 100 þús. kr. eða meiru? það er engin goðgá og heldur engin vanvirða fyrir góðtemplararegluna, þótt slíkt sé sett í samband við áfengislöggjöfina. Það er ekki nema eðlilegur hlutur, að þegar breyt. verður gerð á áfengjslöggjöfinni, þá taki þingið einnig ákvörðun um, hvort það vill veita sérstakan styrk til reglunnar vegna þeirrar breyt. og kveði þá á um tilgang hans og hvernig hann skuli notast. Þetta er engin verzlun, heldur er um eðlilegt orsakasamband að ræða. Hv. þm. taldi, að hv. þm. Str. hefði lagt orð mín út á betri veg. Það var auðheyrt, að hv. 1. þm. Reykv. gerði það ekki. En máske hefir hv. þm. gert það í þeim tilgangi, að mér gæfist betra tækifæri til að svara.
Annars hefi ég áður sagt það, að ég hefi ekkert á móti þessum kaupum, ef ríkissjóði er jafnframt séð fyrir nýjum tekjum, sem nægi til að fullnægja kaupunum, sé það gert, losna hvatamenn þessarar till. við mína andúð. Ég hefi ekkert tilefni gefið hv. þm. til að segja, að ég vilji verzla við stúkurnar, vera með þessari till., ef þær slái af stefnumálum sínum. Ég vil einmitt ljá stúkunum lið til að vinna starf sitt á réttan hátt. Það dettur vitanlega engum í hug, að stúkurnar muni falla frá sínum tilgangi. Og vitanlega dettur heldur engum í hug, að þeim sé veittur styrkur, nema þær vinni að sínu málefni með þeim aðferðum, sem bezt gefast. Ég veit, að hv. 1. þm. Reykv. skilur mig og finnur, að hér er ekki um neina verzlun að ræða og að hann hefir lagt orð mín út á verri veg.