28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í D-deild Alþingistíðinda. (1967)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Pétur Ottesen:

Það væri synd að segja, að ekki hafi skinið góðvilji og velvild til bindindismálsins út úr ræðum allra þeirra, sem talað hafa í þessu máli. Það er vitanlega allrar virðingar vert að láta skína í góðan hug, en óneitanlega slær það nokkurri rýrð á alla þessa velvild, þegar tillögur og allt háttalag þessara sömu hv. þm. gengur í þveröfuga átt. En það hefir því miður viljað við brenna í þessu máli.

Á þessu þingi hefir komið fram mesti fjöldi af þáltill. um útgjöld úr ríkissjóði, án þess að ríkinu væri jafnframt séð fyrir nýjum tekjum. Í sumum þessum till. er farið fram á miklu hærri útgjöld úr ríkissjóði en í þessari till. felst. Ég hefi ekki heyrt hæstv. ráðh. mótmæla þessum útgjaldatill. með einu einasta orði, þangað til nú, að á að fara að styrkja bindindisstarfsemina. Ég hefi t. d. kynnt mér afstöðu hans í Ed. til þáltill. um 100 þús. kr. framlag til sundhallarinnar. Hæstv. ráðh. tók mjög vel undir þessa fjárveitingu og kveinkaði sér þá ekki yfir, að þröngt væri fyrir dyrum hjá ríkissjóði.

Það er fyrst eftir að fram er komin till. um nokkra fjárveitingu til styrktar og eflingar bindindisstarfseminni í landinu, að hæstv. ráðh. fær einhverja aðkenningu af umhyggju fyrir ríkissjóði, sem brýzt nú fram hjá honum í andmælum gegn þessari till. þó skorti ekki hjá honum fremur en öðrum andmælendum till. fögur orð um góðan hug í garð bindindismálsins, en honum fer það ekki betur en öðrum að vera með slíkt orðagjálfur, samhliða því, sem hann af öllum mætti leggst á móti þeim stuðningi við þetta mál, sem í till. felst.

Hæstv. ráðh. var að tala um, að meiri hl. fjvn. sýndi óvarkárni í meðferð á fé ríkissjóðs með þessari till. Ég get vel fallizt á, að sérstakar ástæður þurfi að vera fyrir hendi til að fara fram á fjárveitingu úr ríkissjóði með þáltill., þegar tekjuvonir ríkissjóðs gera ekki betur en standast útgjöld í fjárlögum. En það hefir nú verið á það bent, að tilefnið til þess, að nú er farið fram á þessa fjárveitingu, eru einmitt þau straumhvörf, sem nú eru að verða í þessum málum hjá okkur og sem talið er, að leiða muni af sér auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Það á því ekki við hér, að verið sé að stofna til útgjalda án þess að von sé tekna á móti. Það sýnir heldur ekki mikil heilindi hjá hæstv. ráðh. í umhyggju hans fyrir ríkissjóðnum, þar sem andmælin snúast eingöngu gegn þessari einu till., en engum andmælum er hreyft gegn miklu stærri fjárhæðum til annara hluta.

Þá vantaði svo sem ekki velviljann hjá minni hl. fjvn. Hv. frsm. minni hl. sagðist ekki þurfa að taka fram, að ekki mætti líta svo á, að í brtt. hans fælist nokkur fjandskapur gegn reglunni. En eins og hv. 4. þm. Reykv. hefir sýnt fram á, felst engin úrlausn fyrir regluna í brtt. minni hl., svo að miklu hreinlegra hefði verið af þessum hv. nefndarmönnum að leggjast alveg á móti málinu. Ef góðtemplarareglan byggir hús og vill selja hús sitt og lóð upp í kostnaðinn, getur hún ávallt gert það á þeim grundvelli, sem lagður er í brtt. minni hl. í henni felst því í rauninni ekki annað en það, að vísa málinu á hug. Eðlismunur á þeirri brtt. og beinni andstöðu við málið er því enginn.

Eins og ég hefi áður tekið fram, liggja hér alveg sérstakar ástæður fyrir. Nú hefir farið fram þjóðaratkvgr. um áfengislögin, og í nokkrum hluta landsins hafa atkv. fallið svo, að nokkur meiri hl. hefir fengizt með afnámi laganna. Ég vil nota tækifærið til að lýsa yfir því, að þótt ég sé afnámi bannlaganna andvígur og telji það óráð, þá verður Alþingi að beygja sig fyrir því, sem ofan á hefir orðið við þessa atkvgr., þó þannig, að í engu sé vikið frá fullkomlega þinglegri meðferð málsins og að forsvaranlegar ráðstafanir séu gerðar samtímis til varnar þeirri auknu hættu af aukinni vínnautn, sem af þeirri breyt. leiðir óhjákvæmilega. En þó að lögin verði nú ekki afnumin á þessu þingi, er sannarlega ekki of snemmt að fara nú þegar að gera ráðstafanir til að efla bindindisstarfsemina og standa á móti voða þeim, sem af ofdrykkju leiðir. Nú stendur einnig svo á, að reglan á 50 ára starfsafmæli hér á landi á næstunni. Allir vita, að bindindisstarfsemin verður fyrst og fremst að byggjast á félagsskap og samtökum, en skilyrði fyrir því, að slíkt geti þrifizt, er, að félagsskapurinn eigi góð og vistleg húsakynni. Reynslan hefir orðið sú um allt land, að templarastarfsemin hefir þá fyrst farið að blómgast, er góð húsakynni voru fengin. En Reykjavík hefir vaxið úr 4000 íbúum upp í 30 þús. síðan reglan hóf þar starfsemi sína, en þó verður hún enn að búa við hin sömu húsakynni og í öndverðu. Þegar þar bætist nú við, að nú á að opna landið aftur upp á gátt fyrir áfenginu, er óhugsandi annað en að þeir, sem ekki ætla alveg að leggja hendur í skaut, þótt svart sé framundan, reyni að bæta aðstöðu sína, áður en þeir leggja út í þessa baráttu.

Fyrir mörgum árum ætluðu bindindisfélögin að koma sér upp stærra húsi hér í Reykjavík, en voru hindruð í því. Og hverjir voru það, sem hindruðu þau í því? Það var Alþingi sjálft, eða réttara sagt forsetar þess, þótt furðulegt megi þykja. Þeir sendu lögreglustjóra og lögreglu til þeirra, sem að byggingunni stóðu, til að skipa þeim að hætta, af því að réttur góðtemplara til lóðarinnar væri ekki skýlaus og gæti komið í bága við hagsmuni Alþingis. Þannig var það Alþingi sjálft, sem hindraði, að þarna væri reist reisuleg bygging á þeim tíma, og síðan hefir reglan orðið að búa hér við sívaxandi þrengsli til stórhnekkis fyrir starfsemina.

Þegar nú er litið á þessi afskipti Alþingis áður af þessum byggingarmálum, verður skylda þess í þessu máli nú enn ótviræðari, er það bætist við, að aldrei hefir verið meiri nauðsyn á að efla og styrkja bindindisstarfsemina en einmitt nú. Alþingi hefir undanfarin ár sýnt lit á að viðurkenna þessa nauðsyn með árlegum styrk til starfsemi reglunnar. En þetta er í fyrsta skipti sem reglan fer fram á styrk til að efla og bæta aðstöðu sína á þennan hátt. Við væntum þess, að Alþingi taki þessu máli því fremur vel sem hér í Reykjavík verður sjáanlega eftirleiðis sem hingað til höfuðvígi bindindisstarfseminnar, enda aðstaðan hér bezt og áhrifin héðan mest út um landið.

Nauðsynin á eflingu bindindisstarfseminnar er svo rík og aðkallandi, að Alþ. verður þegar í stað að láta í ljós undanbragðalaust, hvort það vill styðja regluna að þessu leyti í baráttu hennar eða ekki. Ég vil benda á það, að þeir, sem barizt hafa fyrir afnámi bannlaganna, hafa ávallt í ræðu og riti viðurkennt gagnsemi bindindisfélagsskapar. Nú gefst þeim tækifæri að sýna hug sinn í verkinu. Ég þykist því mega treysta því, að þeir standi við orð sín og styðji bindindisstarfsemina öfluglegar en nokkru sinni fyrr.

Hv. frsm. minni hl. sagði, að Alþingi væri ekki bundið við þál. fram yfir það, sem felst í samningum ríkisstj. Ég vil geta þess, að þeir samherjarnir í minni hl. fjvn. hafa lítið öðruvísi á þetta, þegar um ábyrgðir fyrir einstök félög hefir verið að ræða, því að í Nd. hafa verið samþ. tvær slíkar ábyrgðir með fullu jákvæði þeirra beggja. hér gildir hið sama og um ábyrgðirnar, að vikið er frá venjulegri braut, vegna aðkallandi nauðsynjar, en auðvitað hefði þessi fjárveiting og ábyrgðarheimildirnar verið bornar fram í sambandi við fjárlög, ef um venjulegt fjárlagaþing hefði verið að ræða.

Hv. frsm. minni hl. sagði, að við, sem stöndum að till., og meiri hl. fjvn. ætluðum að selja ríkinu það, sem ríkið á. Þetta er fjarri lagi. Má í því sambandi benda á, að við höfum nú í því falli ekki lakari heimild fyrir okkur en fasteignamatið í Reykjavík. Það á að gefa upplýsingar um, hverjir séu eigendur allra fasteigna á þeim tíma, sem matið fer fram, en allar breytingar, sem verða á eigendum fasteigna í bænum, eru skráðar í veðmálabækur hjá lögmanni. Við höfum farið eftir fasteignamatinu og ennfremur kynnt okkur, hvort nokkur breyt. hafi átt sér stað síðan fasteignamatið fór fram, og af þeim heimildum verður ekki annað séð en reglan sé lögmætur eigandi lóðarinnar, og við getum ekki séð neina ástæðu til að rengja þær heimildir að fyrra bragði.