28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (1969)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Gísli Sveinsson [óyfirl.]:
Það er e. t. v. synd að biðja um orðið í þessu máli, par sem ganga ma út frá, að hv. þdm. séu orðnir nokkuð leiðir á umr. þessum. En það hefir komið fram í þeim umr., sem haldið hefir verið afram hér í dag, að ennþá er ekki ljóst, hvað þeir vilja. Það er ekki ennpá ljóst, hvað þeir menn vilja, sem á einn eða annan hátt vilja stuðla að því, að gengið verði inn á hugsun hinnar upphaflegu till., hvort þeir vilja láta kaupa þessa lóð af reglunni með húsinu á einn eða annan hátt, hvort þeir vilja fyrirfram vera ákveðnir í því að selja lóðina ekki, nema fyrir hana fáist visst verð, því að það er greinilegt af till. þeim, sem fyrir liggja, að n. greinir á um þetta. Minni hl. telur, að nægilegt muni, og býst við, að reglan muni ganga inn á það, að eignin sé verðlögð eftir mati. — Nú er réttur templara til lóðarinnar e. t. v. miklu meira takmarkaður en flm. till. ætla. Menn hafa deilt hér um, hvort fasteignamatið síðasta greini rétt frá í þessu efni. Það virðist vera nokkurnveginn upplýst, að fasteignamatið greini ekki rétta eignarheimild að lóðinni. Það hefir tekið þann kostinn, að hún væri í fyrirsvari fyrir allri þessari lóð án þess að geta um þær kvaðir, sem á henni hvíla, sem sé þá kvöð a. m. k., að Alþ. reiknar sér mikinn hluta lóðarinnar, eftir því sem dómsurskurður hefir fallið. Þegar menn greinir á um, hvað í kaupin á að fara og hvað á að greiða fyrir, þá er ekki gerlegt að afgr. málið á þann veg, sem til er ætlazt eftir till. meiri hl. eða minni hl. n. Ef þess er gætt, hver ástæða þdm. hefir verið frá upphafi, þá eru það líka nokkur andmæli gegn því, að hrapað sé að þessu nú, því að bæði ég og ýmsir fleiri eru þeirrar skoðunar, að þessa lóð eigi alls ekki að kaupa, — þvert á móti að gefa þeim lóðina, þ. e. a. s. afhenda þeim hana kvaðalaust og hætta að tala um, að ríkið eigi að kaupa nokkurn hluta lóðarinnar eða húsið, því að Alþ. hefir ekkert við þetta að gera. Það er óþarfi að fara í það lóða- og húsabrask, því að það, sem fyrir Alþ. gæti hafa verið einhver hagsmunavon, er nú alveg úr sögunni, því að menn eru sammála um, að hér verður ekki byggt nýtt þinghús. Hið eina, sem gæti komið til greina, er að kaupa þessa eign og braska með hana, en alls ekki að eiga hana. Hv. þm. Borgf. gat þess, að undanbragðalaust yrði það að koma fram nú, hvort menn vildu styrkja regluna eða ekki. Það er ástæðulaust að setja slíkt úrslitaorð, því að ekkert „ultimatum“ getur komið fram nú, því að Alþ. sýnir, að það vill styrkja regluna til góðra starfa og ekkert nýtt er uppi á teningnum á þessu þingi í þá átt, að svo verði ekki gert, þó að menn vilji ekki setja sig á móti því, að þjóðarviljanum verði fullnægt og hannið afnumið. Ég álít ekki tímabært að krefja Alþ. aukins styrks til reglunnar fyrr en breytt áfengislöggjöf er komin á, því ef ætti að binda það því skilyrði, að þá fyrst geti komið til mála með svo óvenjulega mikinn styrk til reglunnar, að starf hennar væri komið í hið nýja horf og hún ætti að fara að vinna að gangi og gengi bindindismálsins í landinu undir nýju viðhorfi, sem myndast þegar bannið verður afnumið, þótt menn eins og ég geti fellt sig við till. minni hl., svo hljóðandi: „Alþ. ályktar að heimila ríkisstj. að kaupa hús og lóð góðtemplara við Vonarstræti og Templarasund í Rvík eftir mati óvilhallra dómkvaddra manna“. Þetta er sú eina afgreiðsla, sem vit er í á þessum grundvelli. Ég sé ekkert á móti því að setja inn í þessa heimild til ríkisstj.: „þegar núgildandi áfengislöggjöf er afnumin“. Nú er fé vitanlega ekki fyrir hendi. Það hefir verið ymislegt samþ. á þessu aukaþingi, sem eykur ábyrgðir ríkissjóðs, en það eru ekki beint fjárútlát. Tillögumenn hafa ekki bent á eina einustu leið til fjáröflunar og munu ekki geta bent á neina leið til að standast slíkan kostnað, sern af samþ. þessarar till. myndi leiða. Það er því rétt að gera algerða verzlun, og mér þótti það furðu loðið hjá hæstv. fjmrh. að vilja reyna að draga fjöður yfir, að sú skoðun, sem hann setti fram, væri í raun og veru verzlun. Hann benti á, sem hv. hm. Str. samþykkti, að kostnaðurinn við bindindisstarfsemina ætti að koma frá brennivíninu, sem hingað eigi að leiða. Ég skal ekki dæma um það, hvort hv. þm. Str. hefir að áliti templara farið þarna of langt, en hann komst að réttri niðurstöðu. Hann hefir áður verið ráðh., þessi hv. þm., og hann varð að viðurkenna frá sjónarmiði fjmrh., að þetta væri ekki einungis rétt, heldur einnig nauðsynlegt. (JakM: Sjálfsagt!). Ég gat um, að hv. þm. Borgf. hefði sett úrslitaorð um afgreiðslu þessa máls, sem ég og væntanlega mikill hluti d. ekki vill kannast við. Það er ekkert bundið við styrk til reglunnar framvegis, hvort menn vilja rasa að þessu um ráð fram eða ekki. Þá gat hann þess einnig, að starfsemi reglunnar væri nú 50 ára. Hv. þm. vildi benda á, að nú ætti að minnast þessa annaðhvort með velvild eða fjandskap. Hann virðist ætla, að fjandskapurinn komi fram í því, að menn gleypi ekki við þessum till. Það þarf ekki að brýna þá menn á því, þótt andbanningar hafi verið í umræðum, að nú verði þeir að sýna það í verki. Í þessu geta þeir ekki sýnt það, en það kemur til síðar. En nú vil ég stinga upp á, og sérstaklega beina því til bannmanna, sem ennþá kalla sig, þótt bannið sé nú afnumið, hvort þeir vilja ekki ganga inn á það, sem ég benti á við 1. umr. málsins, að þingið gefi þeim lóðina — og hvort þeir geri sig ekki ánægða með það. Ég vil gera gangskör að því, að þetta verði minningargjöf um 50 ára starf reglunnar og láta síðan niður falla ágreining um þetta mál, svo að templarar geti í friði undirbúið sig undir byggingu hins nýja húss og starfið, sem bíður þeirra undir hinu nýja viðhorfi. Þá mun ég leggja fram, til þess að sjá, hvað þessir menn gera áður en allar till. þeirra verða drepnar hér, svo hljóðandi rökst. dagskrá:
Þar sem þingdeildin að athugugu máli sér ekkert því til fyrirstöðu, að góðtemplarar fái í hendur kvaðalaust alla lóð þá, sem till. ræðir um, til húsbyggingar þar, og í trausti þess, að ríkisstjórnin fullgeri slíka samninga við regluna, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.