02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

2. mál, kosningar til Alþingis

Guðrún Lárusdóttir:

Ég lýsti því yfir við 1. umr., að ég væri ekki ánægð með það, að sunnudagur væri ákveðinn kjördagur, og tók ég þá það fram, sem mér virtist ekki hvað sízt mæla á móti því, en það var það, að þetta væri brot á helgidagalöggjöf þjóðarinnar. Þar við vil ég bæta því nú, að margir landsmenn líta svo á, að það séu hrein helgidagsspjöll að halda slíkan fund á sunnudegi, því að eins og allir vita, þá fylgir þessum fundum mikill hávaði og læti, ekki sízt hér í Rvík. Það er því alls ekki sæmandi fyrir þingið að lögleiða slík helgidagsspjöll. Þess vegna hefi ég leyft mér að bera fram þessa brtt., að í staðinn fyrir, að kosning skuli fara fram síðasta sunnudag í júní, verði hún ákveðin síðasta laugardag í júní. Hvað tímann snertir skiptir þetta engu máli, og að öðru leyti má segja það um laugardaginn, að þá er fólk oft lausara við vinnu heldur en þegar vinnuvikan er að byrja. En hvað sem því líður, þá sé ég ekki, að það geti gengið, að lög séu samin, sem brjóta lög, sem þegar eru til.

Ég sé nú, hvernig fer um atkvgr. um þessa till. Ég veit fyrir víst, að ég stend hér sem fulltrúi fjölda manna, sem álítur, að þetta sé ekki eingöngu tilfinningamál, heldur sé það sanngjarnlegt áhugamál, sprottið af lotningu fyrir helgi hvíldardagsins, en hún byggist ekki fyrst og fremst á eintómum tilfinningum.