28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í D-deild Alþingistíðinda. (1972)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Gísli Sveinsson [óyfirl.]:

Herra forseti ! Ég vil aðeins skýra afstöðu mína til dagskrártill. hún er fram komin til þess, að hv. þm. fái tækifæri til að lýsa afstöðu sinni til málsins. Við flm. hennar viljum alls ekki gera kaup á lóðinni; við viljum heldur ekki drepa þær till., sem fyrir liggja, an þess að færa rök fyrir hvers vegna.

Ef þeir hv. þdm., sem vilja fá afgreiðslu á málinu á þessu þingi, telja ekki dagskrártill. fullnægjandi, þá er það að finna leið til þess, að Alþingi afsali sér rétti til lóðarinnar á þessu eða næsta þingi. Þetta er það, sem við flm. dagskrártill. viljum lýsa yfir. Hún nær það, sem hún nær, en ekki lengra. Hæstv. fjmrh. hefir lýst því yfir, að hann treysti sér ekki til að framkvæma afhendingu á eigninni, þó dagskráin verði samþ. Við það er ekkert að athuga. Þeir, sem ekki vilja sætta sig við það, verða þá að afla frekari heimilda.