28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (1974)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Gísli Sveinsson [óyfirl.]:
Herra forseti ! Þar sem mér skilst, að þeir hv. þdm., sem standa að þaltill., vilji fá dagskrártill. breytt í annað form, og þar sem bent hefir verið á, að hún geti valdið glundroða við afgreiðslu málsins, þá mun ég taka dagskrártill. aftur. En ef þáltill. skyldi nú falla við atkvgr., þá er það á ábyrgð þeirra, sem óska, að dagskrártill. sé tekin aftur. Dagskrártill. er því hér með tekin aftur. (HJ: Dagskrártill. er tekin upp aftur).