28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (1975)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Ég vil aðeins beina þeirri fyrirspurn til hv. þm. V.-Húnv., hvort hann taki dagskrártill. upp að athuguðu máli. Orðalag dagskrártill. er alleinkennilegt, þar sem tekið er fram, að hún sé flutt að athuguðu máli. Með því virðist svo sem hv. flm. vilji gefa það til kynna, að dagskrártill. séu venjulega ekki fluttar með slíkum forsendum.

Ég tel ekki tilhlýðilegt, eins og hv. 1. þm. Reykv. tók réttilega fram, að þetta mál sé afgr. á þann hátt, sem dagskrártill. getur leitt til, meðan ekki er vitað, að þð sé í samræmi við vilja aðila sjálfra. Ég mun fylgja efni dagskrártill. sem viðbótarheimild við þál., annars ekki.