30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í D-deild Alþingistíðinda. (1985)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Ólafur Thors:
Hv. þm. V.-Sk. og hv. þm. Snæf. vilja finna gerðum sínum stað með því að tilfæra það, að samþ. hafi verið hér í d. 150 þús. kr. tillag til góðtemplarareglunnar. En þeir vita báðir, að þetta hefði verið fellt, ef einn d.manna hefði ekki verið fjarstaddur. Sýnir það, hvað veik aðstaða þeirra er, að þetta skuli vera helztu rökin. Hv. þm. V.-Sk. kvað rétt að rétta reglunni höndina til þess að geta fengið lausn áfengismálsins á þessu þingi. En slíkir samningar standa ekki til boða. Bannmenn á þingi ætla að hindra afnám áfengislöggjafar þeirrar, er hér hefir gilt, öllum til smanar. Atkvgr. sú, sem fram fór hér fyrsta vetrardag, hefir gefið til kynna, að þjóðin vildi losna við þessi smánarlög. Þó bólar ekki á, að templarar vilji taka afleiðingum gerða sinna á síðasta þingi og hlýða dómi þjóðarinnar. En fyrr vil ég ekki rétta þeim höndina. Vilji þeir aftur á móti gera þetta, stend og við það, sem ég hefi áður sagt, að ég er þá fús til að rétta þeim aftur einhverja gjöf, sem nokkru nemur. (TrÞ: Einhverja sneið). Já, eins þykka og vel smurða sneið og hv. þm. rétti sínum stuðningsmönnum, þegar hann varð ráðherra. Ég er auðvitað sammála hv. þm. Snæf. um það, að ef um það er að ræða, hvort rétta skuli þeim stóra gjöf eða litla, þit er betra fyrir ríkissjóðinn að láta heldur minni gjöfina. En það liggur ekkert fyrir um það, að templarar fái 150 þús. kr. á þessu þingi, heldur hvert á móti. Ef atkvgr. fer fram um málið, að öllum d.mönnum viðstöddum, þá eru engar líkur til, að það verði samþ.