02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (199)
2. mál, kosningar til Alþingis
Guðrún Lárusdóttir:
Hv. 2. þm. S.-M. hefir nú mælt á móti þessari brtt., en hann kom ekki neitt inn á það, sem er aðalatriði þessa máls, sem er það, að þetta ákvæði í frv. brýtur í bága við núgildandi helgidagalöggjöf, og meðan það er ekki hrakið, sé ég ekki betur en brtt. mín eigi fullan rétt á sér. Allt annað er í rauninni þessu óviðkomandi, og hugleiðingar hv. þm., hvernig menn þjónuðu bezt guði, koma því þessu máli ekkert við.
Svo er líka það, að það er í mesta máta óviðkunnanlegt að hafa kjörfund á sunnudegi. Ég man, þegar kosið var á sunnudegi næstsíðast, þá bar kjördag upp á trinitatishátíð, og þá var margt fólk mjög óánægt með það, og var hreyft öflugum andmælum gegn því.
Ég veit, að það er ekkert óguðlegt athæfi að kjósa; ég veit, að það er borgaraleg skylda að kjósa, en þar fyrir sé ég ekki, að sú skylda sé rýrð, þótt einhver annar dagur en sunnudagurinn sé valinn til að inna þá skyldu af hendi.
Hv. þm. sagði, að það kæmi úr hörðustu átt frá mér, að leggja til að hafa kjörfund á laugardegi, því að sá dagur væri mesti annadagurinn fyrir húsmæður, a. m. k. En ég man í sveitinni eftir því frá því að ég var í sveitinni, að þá höfðu húsmæður einmitt aldrei meira að gera en á sunnudögum, vegna gestkomu, sem var allajafnan tíðust á sunnudögunum. Ég heyrði húsmæður oftsinnis segja, að þær væru aldrei þreyttari heldur en á sunnudögum.
Annars þýðir ekkert að vera að rasa um þetta, heldur láta atkv. skera úr um það, hvort menn vilja nota hvíldar- og helgidag til kosningaærsla, eða hlynna að kyrð þeirra og helgihaldi, svo sem lög mæla fyrir og sérhverjum manni er fyrir beztu.