06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í D-deild Alþingistíðinda. (1999)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Magnús Jónsson:

Ég mundi geta út af fyrir sig fallizt á að afgr. þetta mál með rökst. dagskrá, því að mér finnst ekki tímabært að fara að samþ. þál. á þessum tímamótum. Í umr. um rýmkun áfengislaganna kom það fram, að templarar töldu sér mikinn styrk í bannlögunum, og telja það hafa áhrif á þeirra starf, hvort bannið verður afnumið eða ekki. Þess vegna er rétt að miða styrkveitingu til þeirra við afgreiðslu þess máls. Ef þetta mál verður afgr. á þann hátt, sem þjóðarviljinn krefst, þá teldi ég rétt að koma í móti templurum með því að styrkja starfsemi þeirra og búa svo um höfuðvígstöðvar þeirra hér í Reykjavík, að þeir mættu við una. Ég vil því fresta þessu máli, og það væri handhægur máti með dagskrártill.

En þessi dagskrártill. kemur þvert ofan í það, sem áður hefir verið samþ. í þessu efni. Það hefir verið samþ. að fela forsetum að semja við templara um lóðina. Ég gæti samþ. Þessa dagskrá með tilliti til þess, að hún myndi skjóta málinu á frest, en ég vil alls ekki samþ., að eftirgjöf á kvöðinni komi til mála.

Ég er ekki fær um að leysa húsnæðismál Alþingis svona í skyndi og vil ekki að svo stöddu slá neinu föstu um þetta. Það er engin ástæða til að slá hendinni af þessari lóð sunnan við húsið að svo komnu. Ég tel rétt, að Alþingi hafi umráð yfir lóðinni, bæði vegna útsýnisins og eins ef til kæmi að stækka garðinn. Ennfremur getur vel verið, að byggt verði hús sunnan við þetta hús með göngum á milli. Um þetta er ómögulegt að segja að þessu sinni.

Ég mun greiða atkv. á móti dagskrártill. og mun láta skeika að sköpuðu, hvernig fer um þáltill. Ég vil að sönnu gjarnan styrkja regluna, en finnst það nokkuð uppivöðslusöm till., sem kemur frá hv. Nd. Mér fyndist réttara að setja kaupverðið sanngjarnt og hækka þá fremur styrkinn.