03.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (20)
Rannsókn kjörbréfa
Gísli Sveinsson:
Herra forseti! Úr því að ég stend upp á annað borð, skal ég víkja örfáum orðum að því máli, sem liggur fyrir, enda þótt ég ætti ekki sæti í þeirri kjördeild, sem hafði þetta mál til meðferðar.
Menn tala um lögbrot, sem bæjarfógetinn í Hafnarfirði hafi framið, er hann notaði embættisstimpil sinn, en hafði ekki votta við. Það hefir komið fram í umr., eins og flestir þekkja, og bæjarfógeti sjálfsagt líka veit, að lögin hafa ákvarðað — reyndar af óskiljanlegum ástæðum —, að það skuli hafa tvo votta við. Það er talað um, að þetta sé af gefnu tilefni. En Alþingi hefir í raun og veru enga frambærilega ástæðu til að ákvarða slíkt; því að sé yfirvaldi trúað til að gefa ótal mörg áríðandi vottorð með sinni undirskrift og embættisstimpli, þá er þetta atriði þannig vaxið, að það ætti að vera undir sömu reglu. Allir vita, að embættismenn eru eiðsvarnir í sínum embættum, og það þarf sérstaklega sterkar sannanir til þess að hrinda því, að þeir geri rétt, þegar þeir eru að embættisstörfum og nota sín embættisgögn. Það hefir ekkert komið fram, sem bendi til þess, að bæjarfógetinn í Hafnarfirði hafi haft nokkra hvöt eða löngun og því síður nokkurn tíma nokkra framkvæmd til þess að halla réttu máli í þessu efni eða öðrum. Kjörstjórninni og honum hafa orðið á smávegis formgallar. Má segja, að öðrum hafi líka orðið slíkt á, og mjög er þetta óverulegt. Menn tala um, að bæjarfógetinn hefði ekki mátt veita aðstoð. Satt er það, að lögin um atkv.greiðslu utan kjörstaða gera ekki ráð fyrir því, eins og kosningalögin sjálf gera, sem gilda um kosningu á kjörstað, sem kveða svo á, að skylt sé að veita aðstoð. En þetta er glompa í nýrri l., og í ósamræmi við þann rétt, sem skapaður er í kosningal. þeim mönnum, sem fyrir eina eða aðra orsök treysta sér ekki til að framkvæma kosningaathöfnina. Það hefir gleymzt að færa þetta til samræmis, og væri að gefnu tilefni nú, ef úr því yrði bætt, og hníga öll rök að því. Enda hefir jafnglöggur embættismaður og lögmaðurinn hér í Rvík tekið þetta upp, af því að hann sá, að þetta var ekki bannað í lögunum, en var í samræmi við almenn kosningalög landsins, sem gilda á kjörstað.
Hér er þess vegna um þvílíka smámuni að ræða, þó að það mætti segja, að hér séu að nokkru leyti formgallar, að það tekur ekki tali að eyða löngum túna að ræða þá, eða láta varða neinu viðvíkjandi að öðru leyti lögmætri kosningu, sem fulltrúi Hafnarfjarðar óneitanlega hefir nú.
Þá gat hv. 4. landsk. ekki stillt sig um að heilsa upp á mig, er við erum nú hingað komnir. Það var að vísu svo, að ég bjóst við, eftir ummælum hæstv. forseta, þegar hann setti fundinn, að hér væri til umr. aðeins kosningin í Hafnarfirði, að enginn hv. þm. mundi leyfa sér að draga óviðkomandi mál inn í umræðurnar. En ég reiknaði í gáleysi ekki með því, að þessi hv. þm. hefir ekki farið eftir neinum reglum í stjórn sinni né innan þings. En hann situr nú hér ennþá á náð landsmanna, og þess vegna er það, að menn verða að taka hann ennþá eins og hann er. Kann ég því ekki við annað en víkja nokkuð að því, sem þessi hv. þm. sjálfur og að nokkru leyti hans útsendarar hafa haft í frammi í Vestur-Skaftafellssýslu síðan kosningu lauk þar. Hann mátti koma því hér inn mín vegna, því að svo er um hnúta búið, sem hann og fullvel veit. Hann veit meira en hann vill viðurkenna, af því að hann vill haga sér öðruvísi en samkvæmt betri vitund.
Þessi hv. þm. og þeir, sem hafa honum fylgt, flestir í Reykjavík, en örfáir úr Skaftafellssýslu, hafa viljað gera veður út af minni kosningu. Þeim sárnaði, að ég var kosinn, sem eðlilegt er um andstæðinga. En fyrr mátti nú vera.
Það er vitað, að piltur einn þar austur frá hefir ratað í þá ógæfu að gerast leiksoppur óhlutvandra manna, aðallega í Reykjavík; því að austur í Skaftafellssýslu hafa allir skynbærir menn haft alveg megnustu óbeit og skömm á þessu framferði, og búast jafnvel við, að það orki því, að uppreist þeirra flokks sé fyrir borð borin. Ég taldi að vísu, að rannsókn þyrfti ekki til, vegna þess að það er skömm að því, að þeir, sem ráðin hafa, skuli leyfa, að sakamálsákæra eigi sér stað gagnvart saklausum mönnum, þó að einhverjir óhlutvandir menn heimti það. Við erum sannarlega búnir að fá nóg af því og þjóðin öll, hvernig þessi maður, hv. 4. landsk., hefir hagað sér meðan hann, illu heilli, hafði dómsmálin í höndum sér. — Þangað kemur hann nú aldrei aftur. En vítin eru til þess að varast. Samt mun núv. dómsmrh. ekki hafa viljað leiða hjá sér að halda áfram rannsókn, og nú er henni lokið. Og hvað segir hún? Ja, hún segir ekki annað en það, að þetta er tilhæfulaus vitleysa og megnasta lygi frá upphafi til enda. En einmitt af því að svo er háttað, þá er þetta ágætt mál fyrir hv. 4. landsk. Því að það er honum gómsætast, sem upplýst er, að er lygi og vitleysa. (Forseti hringir).
Þá skal ég víkja að því, sem fullyrt hefir verið, hvort maður hafi verið rekinn úr vinnu þar eystra. Frá heimili þessa manns voru teknir 3 bræður, og ekki hlynnt eins að neinu heimili í því tilliti. Þeir unnu mestmegnis í allt sumar og fram á haust. Var ekki talin ástæða til að gera rekistefnu, þótt einn hafi farið burt fyrir sjálfs sín skuld, eins og óróamaður. Samt komst hann rétt strax að vinnu aftur. Hann var aldrei rekinn, hann hljópst á brott fyrir sjálfs sín óróa og fyrir það, að hann vildi fara í meiðyrðamál við verkstjórann. Vinnu fékk hann á öðrum stað, þegar hann vildi. Það var ekki orðað, að hann færi burt. Þetta kom í ljós við rannsóknina. Einnig reyndi hann ítrekað að fá verkstjórann til að reikna sér kaup fyrir vinnu, sem hann vann ekki. Þetta er atriðið, sem hann var kærður fyrir, því að upplýst er, að hann reyndi með öllu móti að hafa þau áhrif á verkstjórann, að hann tæki heimildarlaust fé af ríkissjóði handa sér.
Í annan stað er þessi maður kærður fyrir það, sem hann hefir borið fram um verkstjórann og eins um mig sem embættismann og frambjóðanda, til ábyrgðar og refsingar skv. 22. kafla hegningarl. Það er hart, að þessi piltur verður illa úti, en það verður svo að vera. Hann var látinn skrifa undir þetta allt, sem ýmsir menn upphugsuðu hér í Reykjavík, og hefir hann ekki haft vit til að varast það, sem lærisveinar hv. 4. landsk. lögðu fyrir hann, eða ekki verið svo umkomumikill. En áður en þessi piltur fór úr vinnu, hafði hann gert sig sekan líka um hitt, að meiðyrða svo gróflega verkstjóra sinn, að hann neyddist til að höfða mál, og þar verður pilturinn dæmdur í sekt, ef um málsefnið verður dæmt. Ég hefi ekki málið með höndum, en ég veit, að hann verður dæmdur. Þetta verður þá allt þeim að kenna, sem hér standa á bak við. Í allri Vestur-Skaftafellssýslu — þó að leitað væri með logandi ljósi — eru ekki nema 3–4 menn, sem hafa viljað sinna þessu. Það má hver fara austur, sem vill, til að smala; hann fær ekki fleiri.
Þessi drengur var látinn gera enn meira. Hann var látinn ljúga upp á framsóknarmenn og bera á þá, að þeir hefðu hallmælt mér. Þeir voru kallaðir fyrir rétt, og lýstu þeir áburð piltsins tilhæfulausan. Nú eru þeir harla reiðir, og mega vera það, því að það er réttlát reiði. En hvernig nokkur þm. getur fengið sig til að fara að hreyfa við þessu óþverramáli hér, það skil ég ekki.
Það er víst og satt, að gerðar voru nokkrar atrennur til þess að koma í veg fyrir, að ég næði kosningu. Það voru meiri atrennur en gerist og gengur. Á mig voru send tvö stórveldi: Sambandið, sem reyndar gafst upp við Mýrdalssand; en fulltrúi þess hefir mest gengið fram í því að æsa þennan mann til óskunda. Hitt stórveldið var ríkisstj., eða hæstv. forsrh., sem hagaði sér skikkanlega, enda hefi ég ekki heyrt, að hann hafi farið geyst í þessu máli, og töluðum við saman eins og menn tala saman. Sjálfsagt var þeim hæstv. ráðh. kappsmál, að andstæðingur minn kæmist að, en ég hefi ekki orðið þess var, að hann hafi gert sér far um að róta í þessum óþverra, — sem passar vel fyrir hv. 4. landsk.
Það var sagt fullum fetum af ungum manni, sem kom í Vestur-Skaftafellssýslu fyrir kosningar og var handgenginn hv. 4. landsk., að hann — þ. e. 4. landsk. — hefði sagt, að nú væri kosningin vís, nú kæmist Gísli að. Nú, hvers vegna? Jú, af tvennu: Að hann var ekki lengur í hinni fullu náð, þessi andstæðingur minn þar, hjá þessum 4. landsk. —, hann hefði skeikað ofurlítið frá hinum rétta vegi; og í annan stað voru það ummæli piltsins, að við kosningarnar 1931 hafi verið gert bókstaflega allt, sem hægt var að gera, til þess að fella Gísla Sveinsson. Það hefði tekizt þá, en það væri ómögulegt að nota svo skítug meðul aftur.