06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í D-deild Alþingistíðinda. (2000)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Guðrún Lárusdóttir:

Ég vildi aðeins gera þá fyrirspurn, hvort þessi þáltill. sé ekki tvennskonar, annarsvegar um kaup á húsi og lóð templara og hinsvegar um styrk til þeirra. Mér skilst, að dagskráin taki aðeins til fyrri hluta till., þar sem aðeins er talað um kaupin. Þess vegna þætti mér rétt, hafi ég skilið þáltill. rétt, að sá liður hennar, sem ræðir um styrkinn, verði borinn undir atkv., hvort sem dagskrártill. verður samþ. eða ekki.

Mér þætti nokkuð harkalega að farið um afgreiðslu þessa máls, ef það verður afgr. á þann hátt, sem dagskrártill. fer fram á. Hér er um að ræða þarfan og góðan félagsskap, sem nauðsynlegt er að styrkja, svo að hann geti undirbúið sig betur undir það aukna starf, sem fyrir honum liggur.