06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í D-deild Alþingistíðinda. (2003)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Guðún Lárusdóttir:

Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. 2. þm. Rang. sagði um það húsrúm, sem templarar eiga nú við að búa fyrir fundi sína og aðra starfsemi. Hv. þm. virtist ekki skilja, að til þess þyrfti mikið húsnæði. Ég get nú upplýst hv. þm. um, að í Rvík eru 10 stúkur, 5 unglingastúkur, umdæmisstúka og stórstúka. Alls 17 stúkur, sem allar þyrftu að hafa fundi sína og aðra starfsemi í þessu eina húsi. Ég veit nú, að hv. 2. þm. Rang. þekkir þetta hús vel. Og ég veit því, að hann skilur það vel, að það muni vera of lítið fyrir svona margar stúkur, ef þær halda fundi reglulega, t. d. einu sinni í viku hver þeirra. Sú kvöð, sem legið hefir á lóð góðtemplara, hefir hægt þeim frá því að hræra legg eða lið til að afla sér betra húsnæðis. þeir hafa því orðið að flytja fundi sína í burt að nokkru leyti og leigja fundarhús í Bröttugötu. Þetta hefir orðið þeim verið kostnaðarsamt. Það er því ekki ófyrirsynju, að þeir vilja byggja, enda er þetta hús mjög ófullkomið og langt frá því að fullnægja þörfum þeirra um fundasali og skrifstofupláss, sem þeim er nauðsynlegt að hafa vegna starfsemi sinnar. Hv. 2. þm. Rang. gaf í skyn, að dansinn væri mest áberandi í starfsemi góðtemplara. Ég neita því að vísu ekki, að töluvert sé dansað innan reglunnar, en þó áreiðanlega ekki svo mikið, að sérstakt orð sé á því gerandi, og á engan hátt mun dansinn taka tíma frá annari þarfari starfsemi. En það er aldrei nema eðlilegt, að ungt fólk létti sér upp í dans við og við, og að því þyki þurrt að hlusta á sífelldar bindindisræður fund eftir fund. Er það ekkert einsdæmi um ýmsan annan félagsskap, að dans sé hafður um hönd með öðru því, sem er aðaltilgangurinn; þannig má benda á, að það er t. d. algengt í stjórnmálafélögum, að þau hafi dansskemmtanir fyrir meðlimi sína öðruhverju.

Ég mun svo láta staðar numið um þetta mál. Ég óska eftir því, að þáltill. verði greiðlega samþ. hér í hv. d. Ég játa að vísu, að það er erfitt fyrir aukaþing, sem ekki hefir fjárlög til meðferðar, að samþ. fjárveitingar fund eftir fund. En það þykir mér því undarlegra, að annan daginn er felldur smástyrkur til fátækra félaga, en hinn daginn aftur samþ. stórar fjárhæðir. Ég kalla það að ráðast á garðinn þar, sem hann er lægstur. Það kann að vera mannlegt, en það er ekki mikilmannlegt.