06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í D-deild Alþingistíðinda. (2008)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Guðrún Lárusdóttir:
Ég vildi aðeins þakka hv. 2. þm. Rang. fyrir hans góðu ráð reglunni til handa. En ég get ekki stillt mig um að stinga upp á því við hann, úr því hann hefir slíkan áhuga fyrir umbótum á reglunni, hvort honum sýnist ekki að ganga nú sjálfur í regluna, til þess að kenna henni, hvernig hún á að notast við sitt litla húspláss. (IP: Og kenna henni að fara með fé). Já, og kenna henni sparsemi og betri starfshætti.