03.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

Rannsókn kjörbréfa

Jónas Jónsson:

Þar sem hæstv. forseti leyfir mér að bera af mér sakir, þá gerist þess naumast þörf, þegar svo vill til, að það er sakborningur sjálfur, sem hefir talað, og fyrst og fremst þarf að gera hreint fyrir sínum eigin dyrum.

Mjög skemmtilegur var inngangurinn að ræðu þessa hv. þm., — að eiginlega gerði ekkert til, þótt 1. segðu, að vottar skyldu viðstaddir vera, það mætti eins nota bara stimpil fyrir því.

Þá sagði hann, að lögmaðurinn í Rvík væri skynsamur maður — hvað ég líka viðurkenni — og að hann hefði séð, að það þyrfti að breyta 1., og svo hefði hann breytt þeim. Maður furðar sig ekki á, að heili, sem svona starfar, geti lent í klandri við og við; er efnilegt, ef hann ætlar að halda fram svona þroskuðum skoðunum um löggjafarstarfið eins og hann nú byrjar á.

Ég hefi ekki á þessum örstutta tíma tækifæri til þess að verja þennan unga mann í Mýrdal, sem reynt var að kúga með þessari einkennilegu verzlun. En lítt mun það hafa glatt sýslumanninn, að kæra hefir komið á verkstjórann.

Það, sem hv. þm. sagði um áhrif manna úr Rvík, var allt út í hött. Verkamaðurinn kemur til Rvíkur eftir að ofbeldinu var beitt og hefir bæði hitt mig og aðra og sagt söguna. Ég segi hana eins og hann sagði; ég hefi ekki séð málsskjölin, en mér hefir ekki skilizt annað en það hafi sannazt með vitnunum, sem mestu skipti í þessu máli.

Sýslumaður hefir nú reynt að skaða þennan mann eins og hann hefir frekast getað, og hann gaf í skyn, að verið væri enn að vinna að því með málaferlum. Ekki þarf það að vera ótrúlegt, eftir öllu, sem maður veit um þennan dánumann.

Það er stutt síðan Lárus í Klaustri varð fyrir ranglæti af þeim flokki, sem nú ofsækir þennan unga mann. Íhaldið tók póstafgreiðsluna af Lárusi með ofsókn, því að Lárus átti ekki að vera hæfur til starfans. Mér er ekki grunlaust um, að sýslumaður viti eitthvað um, hvernig framkvæma skyldi það réttlæti. En þar sem Lárus var ekki talinn hæfur bréfhirðingamaður, þá býst ég heldur ekki við, að sérstök ástæða sé til þess fyrir sýslumanninn að hrósa sinni sýslu af því almennt, hvað framsóknarmenn hafi orðið fyrir miklum drengskap austur þar.

Ég minnist þess ekki nú, að sýslumaður Skaftfellinga hafi gefið sig svo mjög út fyrir að vera skáld; það er miklu frekar að hann hafi talið sig vera vísindamann. Og í þeim efnum er hann kunnur fyrir að vitna alltaf í sjálfan sig, í gamlar blaðagreinar, sem enginn hefir lagt á minnið nema hann. En nú vill sýslumaður fara að skálda líka, og ef skáldskapur væri ekkert annað en að segja ósatt, þá hygg ég, að hann hefði nokkra von um, að hans yrði minnzt í þeirri grein líka, með álíka tiltrú og í vísindunum.

Það, sem hv. þm. sagði um Lárus í Klaustri, var allt ósannindi.